Fótbolti

Fagna komu íslenska málarans sem ætlar að skora mörkin fyrir sænska liðið næsta sumar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Rakel Hönnudóttir.
Rakel Hönnudóttir. Mynd/KSÍ
„Markvörður og málari en nú ætlar hún að skora mörkin fyrir LB07,“ segir í fyrirsögninni á grein Sydsvenskan um samning íslensku landsliðskonunnar við sænska liðið Limhamn Bunkeflo 2007.

Rakel Hönnudóttir yfirgefur Breiðablik og hefur ákveðið að fylgja kærastanum til Svíþjóðar og spila með Limhamn Bunkeflo 2007 næsta sumar.

Þetta verður fyrsta sumar hennar í atvinnumennsku en hún hefur spilað með Þór/KA og Breiðablik í Pepsi-deildinni undanfarin ár. Rakel kveður Breiðabliksliðið sem fyrirliði liðsins alveg eins og hún gerði hjá Þór/KA fyrir sex árum áður.

„Mín óskastaða er framliggjandi miðjumaður en ég get spilað allar stöður. Ég fór meira að segja tvisvar sinnum í markið í meistaraflokki þegar markvörðurinn okkar fékk rautt spjald,“ segir Rakel Hönnudóttir í viðtalinu við Sydsvenskan.

„Það eru engir atvinnumenn í íslensku deildinni og allar eru því að læra eða vinna. Ég vann sem málari með fótboltanum. Þetta verður betra hjá LB07.,“ sagði Rakel.

Kærasti hennar er Andri Rúnar Bjarnason, sem jafnaði markametið í efstu deild karla í sumar með því að skora 19 mörk í Pepsi-deildinni. Hann hefur samið við sænska b-deildarliðið Helsingborg.

„Við munum búa í Helsingborg. Það var annað sænskt lið sem hafði áhuga en við náðum ekki saman. Það var ekkert öruggt að ég færi til Svíþjóðar því ég var líka með tilboð frá öðum löndum,“ sagði Rakel.

Hún segir að vinskapur hennar og íslenska landsliðsmiðvarðarins Önnu Bjarkar Kristjánsdóttur, leikmanni LB07, eigi mikinn þátt í því að Rakel valdi liðið.

„Við spilum saman með landsliðinu og erum mjög góðar vinkonur. Hún hefur talað vel um félagið og ég á líka margar vinkonur sem hafa spilað í Svíþjóð. Þetta er mjög góða deild sem ég hef fylgst með í mörg ár,“ segir Rakel.

Rakel gerði bara eins árs samning við Limhamn Bunkeflo 2007 en aðalmaðurinn hjá félaginu, Johan Andersson, vildi gera fimm ára samning við íslensku landsliðskonuna.

Það má finna allt viðtalið við Rakel með því að smella hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×