Körfubolti

Lonzo sá yngsti í sögu NBA til að ná þrefaldri tvennu

Magnús Ellert Bjarnason skrifar
Eins og sést er skotstíll Lonzo öðruvísi en NBA aðdáendur eiga að venjast. Skot hans virkaði þó vel í nótt.
Eins og sést er skotstíll Lonzo öðruvísi en NBA aðdáendur eiga að venjast. Skot hans virkaði þó vel í nótt. Vísir // Getty Images
Lonzo Ball varð í nótt yngsti leikmaðurinn í sögu NBA til að ná þrefaldri tvennu þegar hann skoraði 19 stig, gaf 13 stoðsendingar og tók 12 fráköst í 98-90 tapi L.A. Lakers gegn Milwaukee Bucks.

Lonzo, sem er 20 ára og 15 daga gamall, sló þar með 12 ára gamalt met Lebron James sem náði sinni fyrstu þrefaldri tvennu þegar hann var 5 dögum eldri eða 20 ára og 20 daga gamall.





Giannis Antetokounmpo fór sem fyrr fyrir heimamönnum í Bucks með 33 stig og 15 fráköst. Frábær frammistaða hjá gríska fríkinu sem leiðir NBA í vetur með 31.7 stig að meðaltali í leik.

James Harden átti enn einn stórleikinn í liði Housten Rockets sem hafði betur gegn Memphis Grizzlies, 111-96. Harden skoraði 38 stig í leiknum og gaf 8 stoðsendingar. Fjarvera Chris Paul virðist ekki hafa mikil áhrif á lið Rockets sem sitja í efsta sæti vesturdeildar NBA ásamt Golden State Warriors með 10 sigra og 3 töp.

Warriors unnu sannfærandi sigur í nótt á útvelli gegn liði Philadelphia 76ers, 135-111. Kevin Durant fór fyrir Warriors í stigaskori með 29 stig en Steph Curry og Klay Thompson skoruðu 22 og 23 stig.

Öll úrslit næturinnar eru:

L.A. Clippers - New Orleans Pelicans 103-111

Atlanta Hawks - Washington Wizards 94-113

Memphis Grizzlies - Houston Rockets 96-111

Sacramento Kings - New York Knicks 91-118

Cleveland Cavaliers - Dallas Mavericks 111-104

Philadelphia 76ers - Golden State Warriors 114-135

L.A. Lakers - Milwaukee Bucks 90-98

Chicago Bulls - San Antonio Spurs 94-133

Orlando Magic - Denver Nuggets 107-125

Minnesota Timberwolves - Phoenix Suns 110-118

Brooklyn Nets - Utah Jazz 106-114





NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×