Heilsurækt til góðra verka Sigríður Inga Sigurðardóttir skrifar 13. nóvember 2017 11:00 Þegar Linda byrjaði að vinna í Hress á sínum tíma voru reykingar leyfðar í starfsmannaaðstöðunni. Núna hvarflar ekki að neinum að reykja. MYND/STEFÁN
Linda Björk Hilmarsdóttir er gjarnan kennd við heilsuræktarstöðina Hress í Hafnarfirði, en hún hefur rekið stöðina í tuttugu og fimm ár og kennir fjórum sinnum í viku. „Ég kenni það sem kallast Warm-fit og eru æfingar sem mér finnst virka mjög vel og láta mér líða vel. Þetta er sambland af æfingum til að styrkja og liðka líkamann og æfa um leið jafnvægið. Svo er endað á slökun með köldum ilmkjarnabakstri,“ segir Linda Björk brosandi.Reykt á kaffistofunni Frá því að hún hóf að starfa innan heilsuræktargeirans hefur margt breyst. „Þegar ég byrjaði að vinna í Hress á sínum tíma voru t.d. reykingar leyfðar í starfsmannaaðstöðunni. Þjálfararnir reyktu að vísu ekki en afgreiðslufólkið fékk sér gjarnan smók. Það var ekki opnað fyrr en klukkan níu á morgnana og það var lokað í einn mánuð á sumrin. Núna hvarflar ekki að nokkrum manni að reykja, hvað þá inni á líkamsræktarstöð. Vinsælustu tímarnir hjá okkur eru eldsnemma á morgnana en við opnum klukkan fimm og höfum opið til tíu á kvöldin. Fólk er í miklu fjölbreyttari þjálfun en áður, það hjólar og er í jóga, eða lyftir og fer út að hlaupa. Mér finnst fólk almennt miklu meðvitaðra um heilsuna en áður,“ segir Linda Björk og bætir við að það sé ánægjulegt hversu margir viðskiptavinir hafi haldið tryggð við stöðina síðustu þrjátíu árin. „Margir hafa verið með okkur allan þennan tíma, enda eru þeir í hörkuformi,“ segir hún og hlær. „Við teljum okkur líka vera vinalega og persónulega stöð og húsvörðurinn er einn mikilvægasti starfsmaðurinn því hann sér um að halda öllu vel við. Við förum vel með og nýtum alla hluti vel.“Hressleikar hápunktur ársins Einn hápunktur í starfsemi Hress eru svokallaðir Hressleikar en þeir voru haldnir í tíunda sinn nú á dögunum. Markmiðið með þeim er að safna fé og styrkja fjölskyldu í Hafnarfirði sem gengur í gegnum erfiðleika. „Kveikjan að Hressleikunum var sú að okkur langaði til að gera eitthvað jákvætt og skemmtilegt þegar nýbúið var að blessa Ísland. Allir voru svo daprir og leiðir og í raun í sjokki, bæði viðskiptavinir og starfsfólk Hress, sem ákvað að tala ekki um kreppuna að fyrra bragði. Okkur langaði jafnframt að takast á við einhverja áskorun og í kjölfarið voru fyrstu Hressleikarnir haldnir. Þeir tókust svo vel að árið eftir var ákveðið að endurtaka leikinn og safna um leið peningum fyrir fjölskyldu í okkar heimabæ, Hafnarfirði,“ upplýsir Linda Björk. „Við lítum á þessa söfnun sem skyndihjálp fyrir viðkomandi þegar verst lætur. Við fáum ábendingar um hvern ætti að styrkja og höfum alltaf hitt á dásamlegt fólk. Í ár söfnuðum við hátt á þriðju milljón fyrir Steinvöru Þorleifsdóttur og dætur hennar tvær, Kristínu Jónu og Þórhildi. Eiginmaður hennar, Kristjón Jónsson, lést úr sjaldgæfu krabbameini í fyrra og hún sjálf greindist með ólæknandi krabbamein fyrr á þessu ári,“ segir Linda Björk og bendir á að enn sé hægt að leggja inn á reikning Hressleikanna til styrktar fjölskyldunni. „Allir þjálfarar og annað starfsfólk gefur vinnuna sína þennan dag, en Hressleikarnir krefjast heilmikils undirbúnings og skipulagningar. Um þrjú hundruð manns skrá sig til leiks og skráningargjaldið rennur óskipt í söfnunina, auk þess sem fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu leggja sitt af mörkum. Fyrir það erum við mjög þakklát. Við höfum fengið ótrúlega góð viðbrögð við Hressleikunum og erum þegar farin að skipuleggja leikana á næsta ári,“ segir Linda Björk. Styrktarsjóður Hressleikanna: Reikningur: 0135-05-71304. Kennitala: 540497-2149.
Mest lesið „Æsandi að hugsa til þess að annar maður horfi á“ Lífið Stiklusúpa: Allt það helsta frá kynningu Sony í gær Leikjavísir Heillandi haustkvöld í Höfuðstöðinni Lífið Danska poppdívan Medina selur glæsivilluna Lífið Steldu stílnum af heimili Laufeyjar Tíska og hönnun Svona undirbýr Bogi sig fyrir útsendingu Lífið Breyttu Kolaportinu í risa skemmtistað Lífið Prince-dansarinn Cat er látinn Lífið Náttúruleg leið til að endurbæta meltinguna! Lífið samstarf Ekkert mál að hlaupa alveg staurblindur Lífið Fleiri fréttir Sama hvað fólki finnst Danska poppdívan Medina selur glæsivilluna Prince-dansarinn Cat er látinn Heillandi haustkvöld í Höfuðstöðinni Svona undirbýr Bogi sig fyrir útsendingu Ekkert mál að hlaupa alveg staurblindur „Æsandi að hugsa til þess að annar maður horfi á“ Breyttu Kolaportinu í risa skemmtistað „Æi góði hoppaðu upp í rassgatið á þér!“ Norðlenskur útsýnisdraumur „Hvar eru allir herramennirnir?“ Stefnumótunarferð Fossa með mökum í Prag Hittast á hlutlausum stað Risavaxinn mörgæsarungi nýjasta stjarna Melbourne Magnaðar myndir af lengstu á landsins Seldu Kolbeini Sigþórs og keyptu í miðbænum Tóku hraðanum misalvarlega en hlupu fyrir langveik börn Ebba Katrín og Oddur keyptu hús í miðbænum Kristófer Helga í veikindaleyfi „Eini metnaðurinn minn var að líða ekki illa“ Lítill bróðir mættur: „Fullkominn, stór og sterkur“ Stjörnulífið: Töru Sif meinað að fara í bað Hjálmari Erni leið eins og manninum í Slumdog Millionaire í Kviss Sjóðheitar og einhleypar inn í haustið Janet Jackson biðst afsökunar á undarlegum ummælum „Það eru komnir þrír mánuðir síðan pabbi minn sá fram á það að geta ekki lifað lengur“ Myndasyrpa úr Bakgarðshlaupinu Ísland með auga fuglsins Var talin vera hommi og lögð í einelti Krakkatían: Dýrin, heimsálfur og teiknimyndir Sjá meira