Körfubolti

Fógetinn í Stjörnuna

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Fógetinn Wright í leik með Haukum.
Fógetinn Wright í leik með Haukum. vísir/hanna
Stjarnan hefur samið við Sherrod Wright um að leika með liðinu það sem eftir lifir tímabils.

Wright, eða Fógetinn eins og hann er stundum kallaður, hefur leikið hér á landi undanfarin tvö tímabil.

Hann lék með Snæfelli á þarsíðasta tímabili og skoraði þá 28,3 stig að meðaltali í leik. Wright lék með Haukum seinni hluta síðasta tímabils og skoraði þá 27,1 stig að meðaltali í leik.

Wright er orðinn löglegur með Stjörnunni og gæti leikið sinn fyrsta leik fyrir liðið gegn Þór Ak. á föstudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×