Enski boltinn

United tilbúið að leyfa Fellaini að fara frítt

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Maraoune Fellaini hefur glímt við meiðsli að undanförnu.
Maraoune Fellaini hefur glímt við meiðsli að undanförnu. vísir/getty
Manchester United er tilbúið að leyfa Maraoune Fellaini að fara frítt í sumar í staðinn fyrir að selja hann í janúar.

Samningur Fellainis rennur út næsta sumar. United hefur átt í viðræðum við Belgann um nýjan samning en þær hafa engu skilað.

David Moyes keypti Fellaini frá Everton á lokadegi félagaskiptagluggans sumarið 2013.

Fellaini hefur ekki alltaf verið vinsæll meðal stuðningsmanna United en virðist vera búinn að vinna þá á sitt band.

Fellaini hefur leikið 142 leiki fyrir United og skorað 19 mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×