Handbolti

Vignir öflugur í sigri á Íslendingaliði Álaborgar

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Vignir í landsleik.
Vignir í landsleik. vísir/daníel
Team Tvis Holstebro vann mjög sterkan sigur, 26-24, á Danmerkurmeisturum Álaborgar í kvöld

Vignir Svavarsson skoraði fimm mörk fyrir Holstebro í leiklnum og var markahæstur í þeirra liði ásamt tveimur öðrum.

Arnór Atlason skoraði tvö mörk fyrir Álaborg, sem Aron Kristjánsson þjálfar, en Janus Daði Smárason komst ekki á blað.

Holstebro er í fjórða sæti deildarinnar en það er basl á meisturunum sem eru aðeins í sjöunda sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×