Handbolti

Klaufaskapur í lokin varð liði Birnu að falli

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Birna Berg Haraldsdóttir.
Birna Berg Haraldsdóttir. vísir/getty
Birna Berg Haraldsdóttir og stöllur hennar í Aarhus United máttu sætta sig við svekkjandi tap, 17-16, gegn Viborg í kvöld.

Aarhus fékk tækifæri í lokasókninni til þess að tryggja sér stig. Liðið náði aftur á móti ekki skoti á markið heldur var dæmd leiktöf. Afar klaufalegt.

Birna skoraði þrjú mörk í leiknum, þar af tvö af vítalínunni. Hún nýtti aðeins eitt af átta skotum sínum utan af velli.

Helena Rut Örvarsdóttir átti síðan ekki skot á markið er lið hennar, Byåsen, vann sterkan útisigur, 24-28, gegn Stabæk í norsku úrvalsdeildinni.

Byåsen er í sjöunda sæti norsku úrvalsdeildarinnar en Stabæk er í næstneðsta sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×