Körfubolti

KR fékk Kana frá Sköllunum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Finnur Freyr hefur verið með marga menn í meiðslum í vetur.
Finnur Freyr hefur verið með marga menn í meiðslum í vetur. vísir/anton
Íslandsmeistarar KR eru búnir að bæta við sig Bandaríkjamanni og verða því með tvo slíka fram að jólum hið minnsta.

KR samdi við Zac Carter en sá hefur leikið með Skallagrími í vetur þar sem hann er með 27 stig að meðaltali í vetur. Skallagrímur ákvað aftur á móti að segja upp samningi við hann og þá stökk KR til leiks.

Fyrir hjá KR er Bandaríkjamaðurinn Jalen Jenkins og hann verður áfram hjá liðinu.

Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari KR, staðfestir þessi tíðindi við karfan.is í dag. Hann segir að ástæðan fyrir þessari viðbót sé sú að lygilega margir séu meiddir í KR-liðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×