Körfubolti

Frábær endurkoma Warriors, Celtics óstöðvandi │ Myndbönd

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Stephen Curry og félagar notuðu reynsluna gegn ungu liði 76ers
Stephen Curry og félagar notuðu reynsluna gegn ungu liði 76ers vísir/getty
Þrátt fyrir að Ben Simmons hafi spilað besta leik ferils síns fyrir Philadelphia 76ers í gærkvöld dugði það ekki til að sigra meistarana í Golden State Warriors í bandarísku NBA deildinni í körfubolta.

76ers byrjuðu leikinn frábærlega og voru með 22 stiga forskot í hálfleik og virtust hafa pálmann í höndum sér. En það má aldrei afskrifa Warriors.

Heimamenn unnu þriðja leikhlutann 47-15 og fóru að lokum með átta stiga sigur, 124-116.

Simmons skoraði 23 stig, tók átta fráköst og gaf 12 stoðsendingar. Hjá Warriors var Stephen Curry hins vegar með 35 stig, fimm fráköst og fimm stoðsendingar og Kevin Durant setti einnig niður 27 stig.

Durant hrósaði Simmons mikið í leikslok. „Ég hef aldrei séð neitt honum líkt áður. Hann virkilega spilar leikstjórnandann. Hæð hans og hraði, og þessi styrkur. Það sést að hann er Ástrali, því hann berst vel og fer í hvaða baráttu sem er.“



Boston Celtics vann 15 leikinn í röð þegar Atlanta Hawks kom í heimsókn. Fyrstu tveir leikir tímabilsins töpuðust hjá Celtics, en síðan þá hefur liðið ekki tapað.

Þetta er fimmta lengsta sigurganga Celtics í sögu félagsins, fjórum leikjum frá metinu sem liðið setti tímabilið 2008/09.

Leikurinn byrjaði þó ekki vel fyrir Celtics, en liðið komst fyrst í forystu í þriðja leikhluta eftir að hafa verið 16 stigum undir.

Kyrie Irving var stigahæstur í liði Celtics, skoraði 30 stig, tók 4 fráköst og gaf 5 stoðsendingar. Hann var með frábæra nýtingu í leiknum, hitti 10 af 12 skotum sínum, þar af fimm þriggja stiga körfur, og var með 100 prósenta nýtingu af vítalínunni.





Chris Paul er kominn aftur í lið Houston Rockets og liðið er sjóðandi heitt þessa dagana. Paul skoraði 17 stig og gaf sex stoðsendingar í sínum öðrum leik eftir hnémeiðsli þegar Rockets bar sigurðorð af Memphis Grizzlies 105-83.

James Harden var stigahæstur í liðið Rockets með 29 stig, fimm fráköst og sjö stoðsendingar.

Úrslit næturinnar:

Clippers - Hornets 87-102

Jazz - Magic 125-85

Warriors - 76ers 124-116

Celtics - Hawks 110-99

Rockets - Grizzlies 105-83

Bucks - Mavericks 79-111

Kings - Trail Blazers 90-102

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×