Enski boltinn

Wenger: Wilshere fær tækifæri í deildinni

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jack Wilshere sýndi hvers hann er megnugur gegn Rauðu stjörnunni.
Jack Wilshere sýndi hvers hann er megnugur gegn Rauðu stjörnunni. vísir/getty
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, segir að Jack Wilshere fái tækifæri í ensku úrvalsdeildinni fyrr en seinna.

Wilshere átti góðan leik þegar Arsenal vann Rauðu stjörnuna, 0-1, í Belgrad í Evrópudeildinni í gær.

Wilshere hefur aðeins spilað í Evrópudeildinni og deildabikarnum í vetur en Wenger segir að það styttist í að miðjumaðurinn verði notaður í ensku úrvalsdeildinni.

„Hann mun fá tækifæri, engar áhyggur. Svoleiðis verður það. Hann fékk spark í fyrri hálfleik en náði að klára leikinn sem hjálpar honum mikið,“ sagði Wenger eftir leikinn í gær.

Næsti leikur Arsenal er gegn Everton á Goodison Park á sunnudaginn.


Tengdar fréttir

Arsenal slapp með skrekkinn í Serbíu

Fjölmörgum leikjum er lokið í Evrópudeild UEFA í kvöld. Arsenal náði að merja sigur gegn Rauðu stjörnunni í Belgrad.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×