Allri þjóðinni var boðið Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 21. október 2017 11:15 Sonardóttirin, Marsibil Mogensen Bragadóttir, með afa sínum á myndinni og syngur líka með honum lag í afmælinu. Vísir/Ernir
Þú hittir á hárrétta augnablikið. Það hefur staðið yfir æfing hér frá klukkan eitt en henni er lokið,“ segir Albert Eiríksson vingjarnlega þegar hann heyrir erindi mitt, og réttir manni sínum, Bergþóri Pálssyni, símann. Bergþór bregst líka vel við, er til í afmælisspjall vegna sextugsafmælisins á morgun enda búinn að bjóða 1.500 gestum í Eldborg í Hörpu. „Veislan verður í formi tóna, það er tíu ára gamall draumur. Þegar ég varð fimmtugur hélt ég venjulega veislu og skemmtiatriðin fólust í að ýmsir vinir mínir, söngvarar og píanóleikarar tóku með mér dúetta. Mörgum fannst það skemmtilegt og ég fékk þá flugu í höfuðið að endurtaka þetta að tíu árum liðnum og bjóða helst allri þjóðinni í þakklætisskyni fyrir kynnin. Ég lét svo boð út ganga á fésbókinni fyrir skemmstu og í viðtalsþætti á RÚV og miðarnir runnu út á örskotsstundu.“ Stífar æfingar? „Ég er á æfingum fyrir óperuna Toscu alla daga, og skýt inn æfingum hér heima á milli. Þær voru til dæmis hér áðan Brynhildur Guðjóns og Margrét Eir og tóku lag með mér. Svo fengum við okkur köku og kaffi. Þetta verður voða heimilislegt í Hörpu líka, ekki eins og tónleikar, bara öðruvísi afmæli en venjulega.“ Þegar Bergþór ákvað þetta afmælisgigg fyrir tíu árum sá hann auðvitað ekki fyrir að hann yrði að frumsýna óperu daginn áður. Hann kveðst verða að láta frumsýningarpartýið eiga sig að miklu leyti og fara heim að sofa. „Ég vona bara að mér takist að festa blund fyrir spenningi. Annars eru lögin í afmælinu þau sömu og ég hef verið með á skemmtunum undanfarna áratugi svo ég er bara að dusta af þeim rykið.“ Bergþór ólst upp í Hlíðunum í Reykjavík, man eftir Klömbrum á Klambratúni og ilmi frá reykkofa þar sem hangikjöt og silungur héngu. Síðar var nafni svæðisins breytt í Miklatún og búin til brekka í einu horninu, þar steig hann sín fyrstu skref á skíðum. En var snemma sýnt hvað úr honum yrði? „Ja, þeir sem voru í kringum mig segja að ég hafi, sem krakki, haft tilhneigingu til að vera á sviði og í gagnfræðaskóla hafði ég gaman af að standa upp á göngunum og leika bæði konur og karla. Ég var eiginlega þessi skrítni á tímabili en slapp þó alveg við einelti.“ Tónlistin tók snemma mestan tíma að sögn söngvarans. „Ég lærði á fiðlu mér til gamans en það hvarflaði ekki að mér í uppvextinum að ég mundi starfa við tónlist. Fór þó í tónmenntakennaradeild því ég ætlaði að verða kennari og þá þurfti ég að taka söngtíma. Svo varð þróunin sú sem allir þekkja,“ segir Bergþór. Hann biður fólk vinsamlega að láta miðasölu Hörpu vita ef það geti af einhverjum orsökum ekki notað miða sína á afmælistónleikana á morgun, til að aðrir komist að.
Mest lesið Mörg hundruð manns á opnun kosningamiðstöðvar Katrínar Lífið „Þetta styrkti mig rosalega en þetta braut mig líka“ Tónlist Fataherbergið seldi henni íbúðina strax Tíska og hönnun Gaman að geta grætt fólk á góðan hátt Lífið Fréttatía vikunnar: Lögreglan, körfubolti og frambjóðendur Lífið „Ég dreg mig í hlé og fer bara og stofna kaffihús“ Lífið Tróð upp í Norræna partýinu Lífið Vinskapurinn og gleðin staðið upp úr Lífið Grænmetisæta í 38 ár en ekki lengur Lífið Sérfræðingar rýna í Bakgarðshlaupið: „Endamarkið er í hausnum á þér“ Lífið Fleiri fréttir Vinskapurinn og gleðin staðið upp úr Mörg hundruð manns á opnun kosningamiðstöðvar Katrínar Tróð upp í Norræna partýinu Gaman að geta grætt fólk á góðan hátt Bakaríið í beinni Fréttatía vikunnar: Lögreglan, körfubolti og frambjóðendur Fjórar dýrindis diskósúpur úr hráefnum sem annars hefði verið hent Kynfræðingur selur slotið á landsbyggðinni Bakaríið í beinni Sérfræðingar rýna í Bakgarðshlaupið: „Endamarkið er í hausnum á þér“ „Ég dreg mig í hlé og fer bara og stofna kaffihús“ Grænmetisæta í 38 ár en ekki lengur Una Torfadóttir með sína útgáfu af Bubbalagi frá 1998 Hyggjast renna fimmtíu íslenskum lögum inn í karaokívélarnar Magnús Árni selur sögufrægt hús með kastalaturni „Veit ekkert hvernig þessi ferð endar, en ég er samt mjög ánægð með að hafa lagt af stað“ Ekki með mönnum á hennar aldri því „þeir eru allir látnir“ Minningar um líf sem er að hverfa Lolla í Litlu hryllingsbúðinni:„Þetta er auðvitað geggjað hlutverk“ Jón Daði og María Ósk eignuðust dreng Tíu ár og aukin meðvitund í bransanum Hvetur fólk til þess að leika sér Sígó eftir hvern hring og undir lokin þurfti að lyfta Mari upp úr stólnum en hún hljóp af stað Annie Mist og Frederik eignuðust dreng Hljómborðsleikari ELO fallinn frá Engir palestínskir fánar í Eurovision-höllinni Mikið fjör á opnun kosningaskrifstofu Gnarr Sjarmerandi og seiðandi á sjötugsaldri Nemendur Flóaskóla slá í gegn með Langspilin sín „Kveiktum næstum í öllu sumarbústaðalandinu“ Sjá meira