Fótbolti

Fjögurra marka jafntefli í Íslendingaslagnum

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Jón Guðni spilaði allan leikinn með Norrköping í dag
Jón Guðni spilaði allan leikinn með Norrköping í dag mynd/norrköping
Alls komu fimm Íslendingar við sögu þegar Sundsvall og Norrköping gerðu 2-2 jafntefli í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

 

Jón Guðni Fjóluson og Guðmundur Þórarinsson voru í byrjunarliði Norrköping og Kristinn Steindórsson hóf leik hjá heimamönnum í Sundsvall.

 

Sundsvall komst í 2-0 í upphafi síðari hálfleiks en gestunum tókst að jafna áður en yfir lauk.

 

Kristinn Freyr Sigurðsson hóf leik á bekknum hjá Sundsvall en kom inn á síðustu mínúturnar. Arnór Sigurðsson og Alfons Sampsted voru á bekknum hjá Norrköping og fékk Arnór að spreyta sig síðustu tíu mínúturnar.

 

Sundsvall er í bullandi fallbaráttu en kom sér með jafnteflinu þrem stigum frá fallsvæðinu. Norrköping hinsvegar í ágætis málum í 6.sæti deildarinnar.

Þá sat Elías Már Ómarsson allan tímann á varamannabekk Gautaborg sem tapaði 0-1 fyrir Östersund.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×