Skoðun

Mennt er máttur

Sonja Björg Jóhannsdóttir skrifar
Menntun er gríðarlega mikilvæg og er eitt af grundvallar mannréttindum nútíma samfélags að mínu mati. Menntun eykur þróun og nýsköpun og býr þannig til fleiri tækifæri og starfsmöguleika. Menntun eykur gagnrýna hugsun og hjálpar einstaklingum að finna hvar áhugasvið þeirra liggur. Menntun er og hefur alltaf verið mikilvæg í okkar samfélagi. Í Safnahúsinu á Hverfisgötu er að finna ástarbréf frá árinu 1892 þar sem maður skrifar til konu sinnar og hvetur hana til að fara í skóla. Hann segir „Menntunin er lífsins ljós og þeim menntaða eru fleiri vegir færir en þeim ómenntaða”.

Þó það þætti fremur dramatískt að setja þetta fram á þann hátt að menntun sé lífsins ljós, þá á þetta ennþá við rúmum 100 árum seinna.

Háskólinn í Reykjavík leggur mikið upp úr því að vera nútímavæddur háskóli, það felst meðal annars í því að hvetja nemendur til nýsköpunar. Nýsköpun er ekki ný af nálinni þó ekki séu allir vissir um hvað orðið feli í sér. Nýsköpun er að hugsa út fyrir kassann og nýta þekkingu á nýjan hátt. Sífelldar nýjungar verða til á sviðum atvinnulífs og samfélags og er mikilvægt að fylgja því eftir og skapa þannig tækifæri. Mikilvægt er að hafa sérfræðiþekkingu innan háskólanna til þess að kenna nýjum kynslóðum nemenda þá þekkingu og þannig miðla henni áfram.

Ef sú þekking er ekki til staðar, dregst íslenskt samfélag aftur úr. Fjármagnsskortur háskólanna gerir það að verkum að ekki hefur verið hægt að fá nýja sérfræðiþekkingu inn í háskólanna á Íslandi.

Ísland gæti verið mjög ofarlega á sviði menntunar vegna smæðar og er það kostur fyrir samfélagið að nemendur stundi nám á Íslandi. Undirfjármögnun háskólanna er búin að vara í langan tíma og veldur því að einhversstaðar þarf að skera niður. Með því að skera niður innan háskólanna minnka gæði náms sem veldur því að Ísland mun dragast aftur úr nágrannaþjóðum sínum. Önnur leið til að spara ríkisfjármuni og viðhalda gæðum háskólanna væri að fækka nemendum en með því að gera það er bæði verið að fækka tækifærum nemenda hér á landi og gera menntun að forréttindum sem ekki væru í boði fyrir alla. Báðir valmöguleikarnir eru skref aftur á bak í íslenskum menntamálum og ættum við þá langt í land með að vera á pari við aðra norræna háskóla.

Við Íslendingar eigum það svolítið til að hugsa einungis um einn dag í einu og taka ákvarðanir eftir því en það er engu að síður mikilvægt að horfa til framtíðar og hugsa hvað best sé að gera til lengri tíma. Ef við skerum niður hjá háskólunum í dag, þá fáum við það margfalt í bakið eftir nokkur ár og þá verða vandamálin án efa orðin enn stærri en þau eru í dag.

Ég skora á stjórnmálaflokkana að setja fjármögnun háskólanna í forgang og huga að framtíðinni, því við nemendur erum jú framtíðin.



Greinin er hluti af átaki Stúdentafélag Háskólans í Reykjavík í samstarfi við LÍS - Landssamtök íslenskra stúdenta vegna fjármögnunar háskólastigsins í aðdraganda Alþingiskosninga 2017. Kassamerki átaksins er #kjóstumenntun.




Tengdar fréttir

Kjóstu menntun 28. október

Nú liggur fyrir að kosið verður á ný til Alþingis, 364 dögum eftir síðustu kosningar. Hagsmunahreyfingar stúdenta telja nauðsynlegt að hafa málefni eins og fjármögnun háskólastigsins í forgrunni þegar kemur að vali á fulltrúum á þingi og umræðum um nýja ríkisstjórn.

Mannauður er undirstaða heilbrigðisþjónustu

Undanfarin tvö ár hef ég setið í Stúdentaráði og þar fengið að kynnast mikilvægi hagsmunabaráttu og þess að nemendur hafi rödd. Það hefur verið magnað að fylgjast með hverju er hægt að hrinda í framkvæmd og hvað er hægt að hafa mikil áhrif.

Sagan um Sigga

Það var mánudagsmorgun þegar söguhetjan okkar, Siggi, gekk um háskólasvæðið á leið í sinn fyrsta tíma sem háskólanemi.

Þú færð helmingi minna en á Norðurlöndunum

Ávinningur háskólanáms er mikill fyrir einstaklinga og samfélagið í heild. Hann hefur bein áhrif á efnahag, gildi, þekkingu og viðhorf einstaklinga, samfélaginu til bóta.

Landsbyggðin án háskóla?

Í síðasta mánuði og í raun allt síðasta árið hefur skólinn minn verið að halda upp á þrjátíu ára afmælið sitt. Á tímamótum sem þessum er algengt að fara í sjálfsskoðun, við þekkjum þetta öll þegar við höfum náð ákveðnum áföngum í lífi okkar, aldur, atburður, útskrift eða ákveðin upplifun.

Skiptir þessi háskóli máli?

Nú rúmum 100 árum eftir stofnun hefur starfsemi Háskóla Íslands vaxið og dafnað eins og sjá má á auknum nemendafjölda.

Hugvísindi í hættu

Háskóli Íslands er í fyrsta skipti í hópi 250 bestu háskóla heims á sviði hugvísinda samkvæmt nýjum lista Times Higher Education University Rankings

Eru verðmætin fólgin í náttúrunni?

Á næstum árum og áratugum munu eiga sér stað miklar breytingar á náttúrunni vegna hlýnunar loftslags sem gerist nú á fordæmalausum hraða.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×