Viðskipti innlent

Svipmynd Markaðarins: Nýtur þess að vera með marga bolta á lofti

Anna Þóra Ísfold er nýráðin framkvæmdastjóri Félags viðskipta- og hagfræðinga.
Anna Þóra Ísfold er nýráðin framkvæmdastjóri Félags viðskipta- og hagfræðinga. mynd/Sarah Yasdani
Anna Þóra Ísfold tók við starfi framkvæmdastjóra Félags viðskipta- og hagfræðinga í síðasta mánuði. Anna á fjölbreyttan feril að baki, hefur meðal annars verið framkvæmdastjóri Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda og sérhæft sig í ráðgjöf og umsjón samfélagsmiðla fyrir stofnanir og fyrirtæki, og situr hér fyrir svörum í Svipmynd Markaðarins.

Hvað hefur komið þér mest á óvart það sem af er ári?

Persónulega hvernig hugsanir mínar hafa breyst, hvernig ég stýri þeim í jákvæðan lausnamiðaðan farveg ef á móti blæs og leyfi mér að vera berskjölduð. Á hverju ári set ég mér markmið, fyrir einhverja galdra kem ég þeim í verk, ef þau voru sett á blað. Til dæmis lauk ég diplómanámi í lýðheilsuvísindum í vor og M.Sc. gráðu í viðskiptafræði vorið 2016. Í haust bauðst mér tækifæri til að stýra og byggja upp Félag viðskipta- og hagfræðinga með öflugri stjórn.

Það sem kom sjálfri mér á óvart í ár var að ég hélt að ég væri endanlega útskrifuð úr skóla en er í dag að læra alþjóðlega stjórnendamarkþjálfun í Opna háskólanum í Reykjavík. Ætli kosningar í október hafi ekki komið mér mest á óvart af því sem tengist samfélaginu okkar.

Hvaða app notarðu mest?

Ég nýti Podcast mikið fyrir innri ró og sjálfsrækt, allt frá TED Talks til Super Soul Oprah’s og allt þar á milli.

Hvað gerir þú í frístundum þínum?

Dætur mínar fá stærstan bita af kökunni. Við förum í sund, lesum bækur, spilum, spáum í lífið, dönsum og leikum okkur.

Ég sit í stjórn Félags kvenna í atvinnulífinu í sjálfboðavinnu, nýt þess að koma að verkefnum sem munu verða dætrum mínum til góða, að birtingarmynd samfélagsins verði komin í jafnvægi þegar þær fara út á atvinnumarkaðinn.

Matseld er ástríða mín ásamt því að hafa nördalegan áhuga á D-vítamíni og fræðigreinum því tengdum. Er lestrarhestur og get gleymt mér, les í Kindle-appinu bækur sem mér dettur þann daginn í hug að kaupa mér. Þessa dagana er ég að lesa Option B: Facing adversity, building resilience and finding Joy eftir Sheryl­ Sandberg og Adam Grant. Brené Brown er líka í sérstöku uppáhaldi þessa dagana.

Hvernig heldur þú þér í formi?

Ég hef einbeitt hugað að lífsstíl mínum liðin ár, mataræði sett á oddinn með skipulagningu. Stundatafla Hreyfingar kemur mikið við sögu við líkamlega uppbyggingu. Skoða töfluna kvöldið áður og vel mér tíma sem hentar dagskrá morgundagsins. Hlaup og lyftingar í uppáhaldi. Klukkutíma kröftug vöðvauppbygging og þolæfing, mæli með því! Andlega formið kemur svo í sundlauginni í Bjarnarfirði, með flothettunni frá Systrasamlaginu. Besta tilfinning í heimi að fljóta þyngdarlaus undir stjörnubjörtum himni og norðurljósum.

Hvernig tónlist hlustar þú á?

Ég er gömul sál varðandi tónlist, diskó og eitís.

Ertu í þínu draumastarfi?

Það er flókin spurning að spyrja mig út í draumastarfið. Ég nýt þess að vera með marga bolta á lofti, er í hlutastarfi sem framkvæmdastjóri Félags viðskipta- og hagfræðinga. Starfið er krefjandi, tengt rekstri, viðburðum, innleiðingu stefnumótunar og framtíðarsýnar stjórnar. Á móti hef ég byggt upp ráðgjafarstörf á sviði markaðsráðgjafar með áherslu á greiningu, innleiðingu og umsjón samfélagsmiðla, starfa með fyrirtækjum og félögum að því að ná fótfestu á þessu sviði og veiti starfsfólki handleiðslu. Lýðheilsu- og ­D-vítamínnördinn í mér fær stundum útrás með greinaskrifum, ráðgjöf tengdri heilsu fólks og fyrirlestrum um efnið. Já, ætli megi ekki segja að í þessari blöndu felist draumastarfið, þar sem þekking, menntun og ástríða mætast er einmitt draumastarfið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×