Viðskipti innlent

Græn vakning verður meðal verslunarmanna

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Vitundarvakning í umhverfismálum setur mark sitt á matvöruverslanir.
Vitundarvakning í umhverfismálum setur mark sitt á matvöruverslanir. Vísir/stefán
Netmatvöruverslunin Boxið býður viðskiptavinum sínum nú upp á að fyrirtækið skili dósum fyrir þá í endurvinnslu. Sigurður Pálmi Sigurbjörnsson, einn eigenda Boxins, segir að reynsla starfsmanna Boxins sé sú að fólk hafi margt samviskubit þar sem það hafi einfaldlega ekki tíma í að flokka og skila.

„Vegna þess ákváðum við að bjóða upp á þá þjónustu að taka dósir af heimilum fólks, fara með í endurvinnsluna og leggja svo andvirði skilagjaldsins inn á reikninginn hjá fólki á Boxinu,“ segir Sigurður og bætir því við að með þessu sé verið að nýta þá vannýttu auðlind sem dósirnar eru.

Sigurður segir þetta gott fyrir umhverfið, viðskiptavini og fyrirtæki. Þar sem Boxið keyri vörur til viðskiptavina og taki með dósir í sömu ferð sparist líka eldsneyti þar sem bíll Boxins getur að því loknu farið með dósir margra fjölskyldna á endurvinnslustöð í einu í stað þess að margir bílar fari sömu ferð.

Ákveðið var að bjóða upp á þessa þjónustu í tilefni af ársafmæli verslunarinnar. Sigurður segir að undanfarið ár hafi gengið vel og vöxtur hafi verið mikill. „Við erum alltaf að bæta síðuna og þjónustuna og auka úrvalið. Við finnum að fólk kann gríðarlega vel að meta svona þjónustu.“

En Boxið er ekki eina matvöruverslunin sem vill hugsa betur um umhverfið. Í gær var greint frá því að verslun Bónuss á Smáratorgi yrði opnuð í dag á nýjan leik. Í fréttatilkynningu sem Bónus sendi frá sér kemur fram að í nýju versluninni sé umhverfisþáttum gert hátt undir höfði. Viðskiptavinum nýju Bónusverslunarinnar býðst nú að skilja umbúðir eftir í versluninni og láta starfsmenn hennar um að flokka þær og skila.

Þá segir í tilkynningunni að í öllum kælum og frystum sé grænt kælikerfi sem sé fremst á sviði umhverfisvænna kælikerfa.

Eina kæliefnið sé íslenskur koltvísýringur og kemur hann í stað umhverfisskaðvaldsins freons.

Þá sé vélbúnaður kerfanna jafnframt sparneytinn og kælum og frystum sé lokað með gegnsæjum lokum, bæði til að spara orku og bæta meðferð vöru. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×