Innlent

Kviknaði í ruslatunnum við Gufuneskirkjugarð

Anton Egilsson skrifar
Þykkur reykmökkur myndaðist.
Þykkur reykmökkur myndaðist. Vísir/Fannar Scheving
Eldur kom upp í ruslatunnum við Gufuneskirkjugarð á fjórða tímanum í dag. Slökkvilið var sent á vettvang og er slökkvistarfi nú lokið.

Í samtali við Vísi sagði vakthafandi varðstjóri Slökkviliðsins að um hafi verið að ræða plastruslatunnur sem stóðu við verkfæraskúr í norðurenda kirkjugarðsins. Eldsupptök eru enn ókunn og ekki liggur fyrir hvort að tjón hafi orðið á verkfæraskúrnum.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×