Fótbolti

Fyrsta mark Fanndísar dugði ekki til

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Fanndís Friðriksdóttir og Glódís Perla Viggósdóttir fagna eina marki Íslands á EM.
Fanndís Friðriksdóttir og Glódís Perla Viggósdóttir fagna eina marki Íslands á EM. Vísir/Getty
Fanndís Friðriksdóttir skoraði sitt fyrsta mark fyrir franska félagið Marseille í dag þegar liðið sótti Lille heim.

Mark Fanndísar kom á 41. mínútu og leit lengi út fyrir að það réði úrslitum, en heimakonur náðu að jafna á 77. mínútu leiksins með marki frá Jana Coryn.

Marseille hefur enn ekki náð að vinna leik á tímabilinu og er í níunda sæti deildarinnar með þrjú stig úr sex leikjum.

Fanndís gekk í raðir Marseille frá Breiðabliki undir lok tímabilsins í Pepsi deild kvenna í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×