Fótbolti

Rosengard níu stigum frá toppliðinu eftir jafntefli

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Glódís var á sínum stað í hjarta Rosengård-varnarinnar.
Glódís var á sínum stað í hjarta Rosengård-varnarinnar. vísir/getty
Glódís Perla Viggósdóttir og stöllur í Rosengard náðu aðeins 1-1 jafntefli gegn Göteborg á útivelli í dag en á sama tíma vann Linkopings 1-0 sigur gegn Kristianstads og bætti við forskot sitt á toppi deildarinnar.

Glódís var á sínum stað í byrjunarliði Rosengard en þær höfðu aðeins fengið sex stig úr síðustu fimm leikjum, einn sigur og þrjú jafntefli.

Ella Masar kom gestunum í Rosengard yfir á 17. mínútu leiksins en Pauline Hammarlund svaraði um hæl fyrir Goteborg um miðbik fyrri hálfleiks. Reyndist það vera síðasta mark leiksins.

Á sama tíma vann Linkopings nauman sigur á heimavelli gegn liði Elísabetar Gunnarsdóttur en með sigrinum er Linkopings komið með níu stiga forskot á toppi deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×