Innlent

Ógeðfelldir aðilar vaða uppi innan óperubransans

Jakob Bjarnar skrifar
Gunnar segir tónlistargeirann sannarlega ekki hafa farið varhluta af mönnum sem fara þar um, misnota aðstöðu sína og svífast einkis til að ná sínu fram. Þeir eru sannarlega til menn á borð við Harvey Weinstein innan óperu heimsins.
Gunnar segir tónlistargeirann sannarlega ekki hafa farið varhluta af mönnum sem fara þar um, misnota aðstöðu sína og svífast einkis til að ná sínu fram. Þeir eru sannarlega til menn á borð við Harvey Weinstein innan óperu heimsins.
Gunnar Guðbjörnsson óperusöngvari er einn þeirra sem hefur stigið fram á Facebooksíðu sinni og greint frá því að óperu- og tónlistarbransinn sé undirlagður af kynferðislegri áreitni. Og þar sé ógeðfelldir aðilar á kreiki sem svífast einskis til að ná sínu fram.

Sannkölluð sprenging hefur orðið í dag á samfélagsmiðlum í kjölfar mála tengdum Harvey Weinstein kvikmyndaframleiðanda og og ásökum á hendur honum sem snúa að bæði nauðgunum og svo kynferðislegri áreitni á hendur konum sem voru undir hann settar. Vísir hefur greint skilmerkilega frá þessum málum.

Björk hefur sagt frá því að hún hafi mátt sæta kynferðislegri áreitni af hálfu Lars von Triers kvikmyndaleikstjóra, sem reyndar vísar þessu alfarið á bug ásamt framleiðanda og þá hafa meðal annarra Telma Tómasson sjónvarpsmaður, Margrét Gauja Magnúsdóttir bæjarfulltrúi og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingmaður stigið fram og greint frá upplifun sinni sem þær túlka sem ofbeldi af hálfu karlmanna.

Vildi hitta Gunnar einan

En, nú hefur Gunnar stigið fram á sviðið, greint frá kynferðislegum óbermum innan óperuheimsins sem misnota aðstöðu sína. Sjálfur hefur Gunnar ekki farið varhluta af slíkum kónum.

„Fyrir um 28 árum upplifði ég að ráðning í óperuverkefni gekk til baka þegar listrænn stjórnandi, sem hafði stungið uppá að hitta mig heima hjá mér „til að ræða ráðningarmál“, hætti við allt saman þegar hann hitti fyrir kærustuna mína, Ólöfu á staðnum sem ætlunin var að hitta mig einan á.

Viðkomandi hætti s.s. við allt saman og það var varla að maður trúði því þá að heimurinn gæti verið svona undarlegur. Að heilagur heimur listanna sem ætti að vera svo góður og réttsýnn virkaði með þessum hætti.“

Svífast einskis til að ná sínu fram

Gunnar segist ekki geta sagt að hann hafi sjálfur persónulega upplifað aftur þessa sömu ónotatilfinningu nema af öðrum ástæðum:

„Ég hef heyrt af mörgum dæmum um kynferðislega áreitni sem konur í óperu- og tónlistarbransanum hafa orðið fyrir. Það eru ógeðfeldir aðilar í þeim bransa eins og öðrum sem svífast einskis til að ná sínu fram.

Hvet konur til að koma fram með sínar sögur. Þessa hegðun þarf að uppræta.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×