Hlakkar til næstu ára Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 17. október 2017 10:15 Emilía með dætrunum Völvu Nótt og Emblu Sól að snæðingi í Edinborgarkastala. Mynd/Ómar
Þó að ég sé hæstánægð með aldurinn eru engin sérstök hátíðahöld fyrirhuguð í dag. Ég ætla bara að gefa manninum mínum og börnunum okkar fjórum eitthvað gott að borða í kvöld,“ segir Emilía Örlygsdóttir, starfsmaður á leikskólanum Klömbrum, sem er fertug í dag. Þar með er ekki öll sagan sögð því á laugardagskvöldið ætlar hún að halda veglega upp á afmælið með æskuvinkonu sinni, Þóru Þorsteinsdóttur. „Mömmur okkar Þóru kynntust haustið 1977, í íslenskunámi í Háskóla Íslands, kasóléttar. Við Þóra fæddumst með tveggja daga millibili, ég 17. október og hún 19. október og ég held að við séum búnar að leika okkur saman síðan. Báðar fjölskyldurnar bjuggu á nemendagörðum og þar var oft haldið upp á afmælin okkar saman fyrstu árin. Svo flutti Þóra til Bandaríkjanna með foreldrum sínum og ég til Húsavíkur með mínum en við héldum samt alltaf sambandi. Þegar hún var komin til Reykjavíkur aftur heimsótti ég hana alltaf þegar ég var á ferðinni og við náttúrlega héldum áfram að vera bestu vinkonur þegar ég flutti til Reykjavíkur tvítug. Við fögnuðum 25 ára afmælunum okkar saman á efri hæð Dillon en svo hefur verið hlé á því síðan. Nú ætlum við aftur að halda almennilegt partí. Í kvennaheimilinu Hallveigarstöðum er veislusalur sem við ætlum að leigja. Þegar við fórum að bjóða núna er nánast allur gestalistinn úr 25 ára afmælinu og svo hefur bæst aðeins við.“ Emilía segir samband foreldra sinna, Valgerðar Gunnarsdóttur og Örlygs Hnefils Jónssonar, aðeins hafa verið ársgamalt þegar hún fæddist. „Þau byrjuðu að plana mig eftir bara mánuð. Svo komu tveir strákar á eftir. Fjölskyldan flutti til Húsavíkur þegar ég var fimm ára, þar var ég allan grunnskólaaldurinn og fór svo í Menntaskólann á Akureyri,“ lýsir Emilía sem er með BA í stjórnmála- og kynjafræði og meistarapróf í hagnýtri menningarmiðlun. Hún er að kenna á leikskólanum Klömbrum og er stundakennari í ferðamálafræðum við Háskólann á Hólum. Sem sagt í 130% vinnu og á svo fjögur börn, eins og áður er komið fram, þau heita Garpur Hnefill, Úlfur Hnefill, Valva Nótt og Embla Sól. Emilía er bara spennt fyrir því að verða fertug. „Ég held að það sé góður kafli fram undan og hlakka til næstu ára.“
Mest lesið Nýtt myndband af Katrínu vekur athygli Lífið Byggja draumavillu með sundlaug sem kostar sextán milljónir Lífið Pizza King til sölu á þrettán milljónir Lífið Tíu milljónir safnast fyrir grindvísk ungmenni Lífið Ingó veðurguð og Alexandra eiga von á stelpu Lífið Heiðdís Rós vill komast á Forbes listann Makamál Óvenjulegur lífsstíll íslenskrar fjölskyldu vekur athygli Lífið Sturla Atlas og Kolfinna slá sér upp Lífið Hamingjusöm og þakklát Katrín Tanja á splunkunýjum jeppa Lífið „Ég kynntist ástinni í lífi mínu þarna“ Lífið Fleiri fréttir Nýtt myndband af Katrínu vekur athygli Tíu milljónir safnast fyrir grindvísk ungmenni Pizza King til sölu á þrettán milljónir Byggja draumavillu með sundlaug sem kostar sextán milljónir Kveðja eftir 117 ára góðgerðarstarf Hamingjusöm og þakklát Katrín Tanja á splunkunýjum jeppa Sturla Atlas og Kolfinna slá sér upp Magni gerði allt vitlaust þegar hann tók Dolphin's Cry Katrín sögð hafa sést úti meðal almennings Grímur leitar að bræðrum sínum Stjörnulífið: Eyddi kvöldinu með Paris Hilton í LA Zara tók sjálfur með gosinu Ingó veðurguð og Alexandra eiga von á stelpu Kann ekki að gefast upp Geggjuð í karókí og býr yfir miklum sannfæringarkrafti Fagnaðarfundir í 80 ára afmæli Loftleiða Salvador á Djúpavogi reyndist heita Buszek og búa í Sandgerði Dó næstum því við tökur á Íslandi Óvenjulegur lífsstíll íslenskrar fjölskyldu vekur athygli Krakkatían: Eurovision, rapparar og fótboltamenn „Ég kynntist ástinni í lífi mínu þarna“ Ætlar aldrei að gefast upp Fréttatía vikunnar: Húsbruni, skiltastærð og félagaskipti Ábendingum um aðstoð fyrir Blæsa rigndi yfir fjölskylduna Bíða eftir tölvupósti frá Heimsmetabók Guinness Myndaveisla: Spessi frumsýndi Afsakið meðanað égæli Bríet umkringd stórstjörnum í Japan Rétta úr kynjahlutfallinu á Álftanesi Binni Glee trúir ekki á risaeðlur Tignarleg arkitektaíbúð með vínherbergi í kjallara Sjá meira