Sport

Söguleg stund á Wembley

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Ajayi (til hægri) á nígeríska foreldra, færddist í Englandi en hefur búið í Bandaríkunum mestan hluta lífs síns
Ajayi (til hægri) á nígeríska foreldra, færddist í Englandi en hefur búið í Bandaríkunum mestan hluta lífs síns vísir/getty
Jay Ajayi varð í dag fyrsti leikmaðurinn sem fæddur er í Lundúnum sem spilaði NFL leik á Wembley þegar Miami Dolphins og New Orleans Saints mættust.

Þó nokkrir leikir í NFL deildinni hafa verið spilaðir á þjóðarleikvangi Englendinga undan farið, en aldrei hefur það gerst áður að leikmaður fæddur í Lundúnum spili í þeim leikjum.

„Velgengi Jay hefur gefið okkur leikmann sem getur búið til fyrrirsagnir. Hann er einhver sem við getum bent ungum breskum íþróttamönnum á í tengslum við að byrja að æfa íþróttina okkar,“ sagði Mark Waller,varaformaður alþjóðamála NFL.

Ajayi fæddist í Lundúnum árið 1993, en flutti til Bandaríkjanna þegar hann var sjö ára. 

Hann hefur komið fram í Lundúnum í vikunni í tengslum við leikinn og gaf meðal annars út nammi í samvinnu með IT'SUGAR.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×