Enski boltinn

Koeman: Get ekki kvartað yfir viðbrögðum stuðningsmanna

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson hefur enn ekki skorað fyrir Everton
Gylfi Þór Sigurðsson hefur enn ekki skorað fyrir Everton Vísir/Getty
Stuðningsmenn Everton létu leikmenn liðsins heyra það eftir tapið gegn Burnley í dag. Everton er í 16. sæti deildarinnar eftir sjö umferðir.

„Ég get ekki kvartað yfir viðbrögðum stuðningsmanna okkar. Það eru allir mjög ósáttir við gengi liðsins en stuðningsmennirnir geta ekki kvartað yfir vinnuframlagi leikmanna, því þeir eru allir að leggja sig fram,“ sagði Ronald Koeman, knattspyrnustjóri Everton eftir tapið í gær. Aðeins Swansea og Crystal Palace hafa skorað færri mörk en Everton í deildinni.

„Ég er með góðan leikmannahóp í höndunum og lausnin hjá okkur er að menn leggi sig eins mikið fram og við sáum í dag. Einnig þurfa menn að fara spila aðeins betur og svo þurfum við kannski smá heppni með okkur.“

Everton eyddi miklum fjármunum í leikmannakaup í sumar og fengu til sín menn eins og Gylfa Þór Sigurðsson, Wayne Rooney og Davy Klaassen.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×