Erlent

Bein útsending: Tilkynnt um friðarverðlaun Nóbels

Þórdís Valsdóttir skrifar
Juan Manuel Santos, forseti Kólumbíu, hlaut friðarverðlaun Nóbels á síðasta ári fyrir að binda endi á borgarastríð í Kólumbíu
Juan Manuel Santos, forseti Kólumbíu, hlaut friðarverðlaun Nóbels á síðasta ári fyrir að binda endi á borgarastríð í Kólumbíu Vísir/getty
Nóbelsnefnd norska Stórþingsins mun tilkynna innan skamms hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels. Fréttamannafundurinn fer fram í Osló og verður í beinni útsendingu.

Fundurinn hefst klukkan 9 og hægt er að fylgjast með útsendingunni hér að neðan.

Norska nefndin samanstendur af fimm einstaklingum sem tilnefndir eru af norska þinginu.

Mikil spenna ríkir á hverju ári yfir því hver hlýtur verðlaunin. Spekúlantar velta því fyrir sér hverjir koma til með að hreppa vinninginn og engin undantekning er á því nú í ár.

Í ár bárust alls 318 tilnefningar, þar af eru 215 einstaklingar og 103 stofnanir. Upplýsingar um tilnefningarnar mega ekki líta dagsins ljós fyrr en 50 árum eftir að verðlaunin eru veitt.

Frá árinu 1901 hafa 130 einstaklingar og stofnanir verið sæmd friðarverðlaunum Nóbels. 

Forseti Kólumbíu, Juan Manuel Santos, hlaut friðarverðlaun Nóbels á síðasta ári fyrir að binda endi á borgarastríð í Kólumbíu sem kostaði 220 þúsund manns lífið.

Líklegir vinningshafar

Margir telja líklegt að sjálfboðaliðar á átakasvæðum í Sýrlandi sem ganga undir nafninu „hvítu hjálmarnir“ muni hljóta verðlaunin í ár fyrir að hætta lífi sínu við leit að eftirlifandi fórnarlömbum í húsarústum í Aleppo. 

Sjálfboðaliðar í Sýrlandi sem kenna sig við hvíta hjálma eru taldir líklegir til að hljóta friðarverðlaunin í ár.Vísir/Getty
Bandaríkjamaðurinn Edward Snowden hefur einnig verið ofarlega á lista yfir þá sem líklegir teljast til að hreppa verðlaunin í ár. Hann varð þekktur á heimsvísu árið 2013 eftir að hann lak gríðarlegu magni leynilegra gagna bandarískra yfirvalda.

Snowden flúði til Rússlands árið 2013. Bandaríkjamenn hafa ákært hann fyrir njósnir og krefjast þess að hann verði framseldur. 

Einnig hefur Frans páfi verið orðaður við verðlaunin ásamt Angelu Merkel. 

Hagfræðiverðlaun tilkynnt í næstu viku

Friðarverðlaunin eru næstsíðustu Nóbelsverðlaunin sem tilkynnt eru á þessu ári. Á mánudaginn verða síðustu verðlaunin, hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans til minningar um Alfred Nobel, tilkynnt.

Sýnt verður beint frá fréttamannafundinum í Stokkhólmi og hægt verður að fylgjast með honum í beinni útsendingu á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×