Körfubolti

Aftur um hreinn úrslitaleikur um titilinn í WNBA

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Candace Parker hjá Los Angeles Sparks og Sylvia Fowles hjá Minnesota Lynx í baráttu um frákast.
Candace Parker hjá Los Angeles Sparks og Sylvia Fowles hjá Minnesota Lynx í baráttu um frákast. Vísir/Getty
Minnesota Lynx tryggði sér í gær hreinan úrslitaleik um meistaratitilinn í WNBA-deildinni í körfubolta á móti meisturunum í Los Angeles Sparks.

Minnesota Lynx vann fjórða leik liðanna 80-69 í úrslitaeinvíginu og jafnaði metin í 2-2.  Los Angeles Sparks liðið gat tryggt sér titilinn á sínum eigin heimavelli en  Lynx konur tryggðu sér oddaleik á sínum heimavelli.

Sylvia Fowler, sem var valin besti leikmaður tímabilsins, var atkvæðamest í leiknum með 22 stig og 14 fráköst. Hin 35 ára gamla Rebekkah Brunson var með 18 stig og 13 fráköst og Maya Moore skoraði 15 stig. Odyssey Sims skoraði 18 stig fyrir Los Angeles Sparks og Nneka Ogwumike var með 17 stig.

Fyrstu tveir leikirnir unnist aðeins með samtals þremur stigum en liðin hafa síðan bæði unnið ellefu stiga sigra í síðustu tveimur leikjum.

Þetta verður því annað árið í röð sem úrslitaeinvígi Los Angeles Sparks og Minnesota Lynx fer alla leið í oddaleik.

Los Angeles Sparks hafði betur með minnsta mun í úrslitaleiknum í fyrra, 77-76, og það má því búast við mjög spennandi úrslitaleik sem fer fram á heimavelli Minnesota Lynx aðfaranótt fimmtudagsins.

Minnesota Lynx liðið vann titilinn 2015 og getur nú unnið hann í fjórða sinn frá árinu 2011.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×