Erlent

Millifærði hundrað þúsund dali á reikning á Filippseyjum

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Stephen Paddock braut tvær rúður á 32. hæð Mandalay Bay hótelsins til að geta skotið á mannfjöldann fyrir neðan.
Stephen Paddock braut tvær rúður á 32. hæð Mandalay Bay hótelsins til að geta skotið á mannfjöldann fyrir neðan. Vísir/Getty
Stephen Paddock, byssumaðurinn sem varð 58 að bana og særði rúmlega 500 í Las Vegas aðfaranótt mánudags, millifærði 100 þúsund dali, um 11 milljónir króna, til Filippseyja skömmu áður en hann framdi ódæðið.

Lögreglumenn vestanhafs vita ekki hver viðtakandinn var eða hvenær nákvæmlega millifærslan átti sér stað. Þeir hafa jafnframt verið tregir til að ræða hana en rannsóknarlögreglumenn á Filippseyjum hafa staðfest að millifærslan hafi átt sér stað einhvern tímann í vikunni fyrir árásina í samtali við fjölmiðla ytra. Í frétt CNN er alríkislögreglan sögð vinna náið með stjórnvöldum á Flippseyjum til að komast til botns í málinu.

Helst leikur grunur á að hann hafi millifært á sambýliskonu sína, Marilou Danley, sem á rætur að reykja til eyjanna eða einhvern skyldan henni. Hún var þar í fríi þegar Paddock réðst til atlögu á sunnudagskvöld en lenti á alþjóðaflugvellinum í Los Angeles í gærkvöldi í fylgd fulltrúa alríkislögreglunnur. Danley er ástralskur ríkisborgari sem flutti til Bandaríkjanna fyrir 20 árum til að vinna í spilavítum í Las Vegas. Hún er ekki talin hafa átt aðkomu að árásinni en verður engu að síður yfirheyrð í von um að hún geti veitt betri innsýn í hvað byssumanninum gekk til. Það liggur enn á huldu en ljóst er að fjöldamorðið var vel skipulagt.

Sjá einnig: „Heigulsháttur“ að gera ekki neitt

Í frétt Washington Post kemur fram að morðinginn innritaði sig á Mandalay Bay-hótelið á fimmtudag, þremur dögum fyrir blóðbaðið. Hann hafi flutt 23 byssur í tíu ferðatöskum upp á herbergið án þess að það vekti grunsemdir starfsfólks. Á meðal skotvopnanna var rifill sem líkist AK-47-hríðskotabyssunni. Með honum fylgdi standur til að halda honum stöðugum.

Morðinginn kom einnig fyrir myndavélum sem hann stjórnaði með spjaldtölvu til að vera tilbúinn þegar lögreglumenn réðust þangað inn. Það er einnig talin vísbending um að morðæðið hafi verið þaulskipulagt.

Auk skotvopnanna sem fundust á hótelherberginu þaðan sem morðinginn skaut á tónleikagesti úti á götu hafa nítján byssur til viðbótar fundist á heimili hans í bænum Mesquite í Nevada-ríki. Þar fundust einnig skotfæri og efni til sprengjugerðar.


Tengdar fréttir

Segir Paddock hafa verið sjúkan

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, gaf í skyn í dag að hann myndi hefja umræðu um lög Bandaríkjanna varðandi byssueign.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×