Lífið

Auðvelt að snúa út úr nýrri auglýsingu Sjálfstæðisflokksins

Stefán Árni Pálsson skrifar
Fín mynd af Bjarna.
Fín mynd af Bjarna.
Alþingiskosningar fara fram þann 28. október og eru stjórnmálaflokkarnir farnir á fullt í kosningaherferð.

Nú má til að mynda sjá andlitið á Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins, á mörgum strætóskýlum í borginni. Skilaboðin á myndinni eru eftirfarandi: Forysta um framfarir.

Vísir hefur fengið tvær ábendingar um að búið sé að fikta í umræddri auglýsingu og breyta auglýsingunni í Forysta um samfarir og búið er að líma IceHot1 fyrir bókstafinn D.

Þetta hefur verið gert við Þjóðskjalasafnið og við Laugardalslaugina eins og sjá má hér að neðan.

Þessi mynd var tekin við Laugardalslaugina.vísir/atli
Þessi mynd var tekin við Þjóðskjalasafnið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×