Lífið

Tæplega 300 fermetra einbýlishús í Garðabæ með innisundlaug

Stefán Árni Pálsson skrifar
Skemmtileg eing í Garðabænum.
Skemmtileg eing í Garðabænum.
Fasteignasalan Domus Nova er með tæplega þrjú hundruð fermetra einbýlishús við Þrastanes í Garðabæ á söluskrá.

Um er að ræða hús sem var byggt árið 1980 og fylgir húsinu tæplega sextíu fermetra tvöfaldur bílskúr.

Alls eru þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi í eigninni en það sem vekur óneitanlega athygli er að í bakgarðinum er yfirbyggð sundlaug og garðskáli sem farið er að þarfnast viðhalds.

Hér að neðan má skoða myndir af húsinu.

Bjart eldhús.
Rúmgóð stofa og borðstofa.
Smekklegt baðherbergi.
Skemmtileg setustofa.
Falleg verönd.
Skemmtilegur garðskáli.
Innisundlaug sem þarfnast viðhalds.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×