Enski boltinn

Ian Wright tekur grimman Ragnar Reykás um kaup Everton á Gylfa

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Nú á að leysa besta manninn af með 19 ára ungstirni...?
Nú á að leysa besta manninn af með 19 ára ungstirni...? vísir/getty
Ian Wright, fyrrverandi leikmaður Arsenal og enska landsliðsins í fótbolta, fór yfir vandræði Everton í enska boltanum í útvarpsviðtali á BBC í gær en hann er einn af fótboltasérfræðingum enska ríkissjónvarpsins.

Everton er í stórkostlegum vandræðum þessa dagana en liðið er ekki búið að vinna í sex leikjum í röð í öllum keppnum. Það er búið að tapa fjórum í röð án þess að skora mark en það hefur ekki komið boltanum í netið síðan Gylfi Þór skoraði markið ótrúlega á móti Hadjuk Split í forkeppni Evrópudeildarinnar í lok ágúst.

Varnarleikurinn hefur einnig verið hörmung en Everton er búið að fá á sig ellefu mörk í síðustu fjórum leikjum en lærisveinar Ronalds Koeman eru í 18. sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir fimm umferðir.

Gylfi Þór var keyptur fyrir 45 milljónir punda.vísir/getty

Inn með táninginn

Eitt stærsta vandamál Everton í sóknarleiknum er hraði fram á við. Ian Wright spyr sig hvers vegna enska ungstirnið Ademola Lookman fær ekki tækifæri en Koeman keypti hann frá Charlton í byrjun sumars fyrir ellefu milljónir punda.

Wright finnst að Lookman, sem er ógnarfljótur og ein af vonarstjörnum enska boltans, hefði átt að fá fleiri tækifæri áður en Gylfi Þór Sigurðsson var keyptur fyrir 45 milljónir punda frá Swansea. Wright segir Gylfa samt sem áður frábæran leikmann.

„Gylfi er frábær og ég er viss um að seinna á leiktíðinni munum við fá að sjá það. Mér finnst Lookman samt ekki svo ótrúlega langt frá þessu,“ sagði Wright á BBC í gærkvöldi.

„Af hverju ertu að kaupa Gylfa á svona mikinn pening þegar þú veist að þig vantar framherja. Everton hefði líka getað sparað sér smá pening og gefið Lookman tækifærið. Þeir eru með Wayne Rooney þarna og svo er hægt að henda Lookman inn á. Af hverju fær hann ekki tækifæri?“

Gylfi Þór Sigurðsson og Wayne Rooney fara yfir stöðuna á Old Trafford þar sem liðið tapaði, 4-0.Vísir/AFP

Gylfi verður bestur

Þegar menn tala jafnmikið um fótbolta opinberlega og Ian Wright er alltaf hætta á því að lenda í mótsögn við sjálfan sig og það gerðist svo um munar í þessu tilviki hjá Wright. Það má segja að hann hafi tekið alveg grimman Ragnar Reykás í þessu málefni.

Wright var nefnilega hrifinn af kaupum Everton á Gylfa og rúmlega það. Hann mætti sem gestur í þáttinn The Debate á Sky Sports í byrjun ágúst þegar félagaskiptasaga Gylfa stóð sem hæst og lofaði þar íslenska landsliðsmanninn í hástert.

„Swansea verður að gera það besta fyrir sig í þessu öllu saman. Verðið skiptir engu máli því markaðurinn er svo skrítinn. Það er þess virði fyrir Everton að borga Swansea hvaða upphæð sem er fyrir Gylfa. Gylfi verður besti leikmaður Everton tölfræðilega ef hann fer þangað,“ sagði Ian Wright um Gylfa áður en hann skipti um skoðun.


Tengdar fréttir

Matraðarkvöld hjá Gylfa og félögum á Ítalíu

Gylfi Þór Sigurðsson og félagar hans í enska úrvalsdeildarliðinu Everton voru rassskelltir í fyrri hálfleik í kvöld í fyrsta leik sínum í riðlakeppni Evrópudeildarinnar.

Gylfi í nýju liði en áfram fastur í botnslagnum

Everton tapaði 4-0 á móti Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í gær og hefur liðið þar með tapað fjórum leikjum í röð í öllum keppnum. Gylfi Þór Sigurðsson og félagar hafa enn fremur ekki skorað í 404 mínútur og það er grátt yfir Goodison Park í byrjun tímabils enda situr liðið í fallsæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×