Enski boltinn

Eiginkona Pochettino er öfundsjúk út í Kane

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Komdu hérna, sæti. Pochettino væri til í að knúsa Kane allan daginn.
Komdu hérna, sæti. Pochettino væri til í að knúsa Kane allan daginn. vísir/getty
Mauricio Pochettino, stjóri Tottenham, er ástfanginn af framherja sínum, Harry Kane, og eiginkona hans er því eðlilega öfundsjúk.

Kane hefur raðað inn mörkum fyrir Tottenham síðan september byrjaði enda getur hann ekki skorað í ágúst. Hann skoraði svo fullkomna þrennu gegn APOEL í Meistaradeildinni í gær. Hann er því búinn að skora ellefu mörk í síðustu sjö leikjum sínum fyrir Spurs.

Pochettino sagðist vera ástfanginn af Kane er hann hafði skorað tvennu fyrir Spurs gegn West Ham á dögunum. Hann passaði sig í ástarjátningunum eftir Meistaradeildarleikinn.

„Nú er eiginkonan orðin öfundsjúk. Eiginkona Kane er það reyndar líka,“ sagði Pochettino léttur og hló við.

„Þetta er samt ótrúlegt. Þetta er Harry Kane og hann hefur ótrúlega hæfileika fyrir framan markið. Það er eitthvað sérstakt við hann og þess vegna er hann einn af þeim bestu í heiminum.“

Vísir/Samsett/Getty



Fleiri fréttir

Sjá meira


×