Erlent

Ætla að byggja geimstöð á braut um tunglið

Samúel Karl Ólason skrifar
Bygging geimstöðvarinnar eru þó eingöngu fyrsta skrefið. Næsta skref er að þróa endurnýtanlegt og mannað geimfar sem hægt er að nota til að ferðast lengra út í sólkerfið.
Bygging geimstöðvarinnar eru þó eingöngu fyrsta skrefið. Næsta skref er að þróa endurnýtanlegt og mannað geimfar sem hægt er að nota til að ferðast lengra út í sólkerfið. NASA
Bandaríkin og Rússland ætla að vinna að því í sameiningu að byggja geimstöð á braut um tunglið. Geimferðastofnun Bandaríkjanna mun leiða verkefnið sem er liður í langtímaáætlun stofnunarinnar að senda mönnuð geimför til Mars. Verkefnið gengur undir nafninu „Deep Space Gateway“.



Geimfarar myndu halda til í geimstöðinni og hún yrði viðkomustaður geimfara sem væru á leið langra út í sólkerfið. Þar að auki yrðu framkvæmdar rannsóknir þar og ný tækni prófuð.

Í tilkynningu frá Roscosmos, rússnesku geimferðastofnuninni, mun samstarfs þeirra við NASA upprunalega ganga út á að þróa tækni til byggingar geimstöðvarinnar. Einnig stendur til að senda geimför á sporbraut í kringum tunglið og á yfirborð þess.

Hér má sjá kynningarmyndband Boeing, sem vinnur með NASA að verkefninu.

Áætlað er að bygging geimstöðvarinnar hefjist um miðjan næsta áratug. Byggingin mun gera vísindamönnum og verkfræðingum kleift að byggja á þeirri kunnáttu sem hefur myndast vegna Alþjóðlegu geimstöðvarinnar sem hefur verið á sporbraut um jörðu frá árinu 1998.

Samstarf Rússa og Bandaríkjanna snýr einnig að því að þróa sameiginlega stuðla varðandi smíði geimfara. Nú eru minnst fimm ríki að byggja eigin geimför og er nauðsynlegt að samræma geimför svo þau geti tengst við geimstöðina.



Þrátt fyrir miklar deilur á milli Rússlands og Bandaríkjanna, meðal annars vegna aðgerða Rússa í Úkraínu og átakanna í Sýrlandi, hefur samstarf ríkjanna á sviðum geimvísinda að mestu haldið áfram eins og ekkert hafi komið upp á.

Fyrsta skrefið

Bygging geimstöðvarinnar eru þó eingöngu fyrsta skrefið. Næsta skref er að þróa endurnýtanlegt og mannað geimfar sem hægt er að nota til að ferðast lengra út í sólkerfið. Til dæmis væri hægt að senda geimfara með geimfarinu til Mars og aftur til geimstöðvarinnar. Þar yrði geimfarið yfirfarið og sent út aftur.

Áætlað er að senda geimfara að tunglinu í slíku geimfari og að þeir myndu vera í ár út í geimnum undir lok næsta áratugar. Það yrði gert til þess að sannreyna að geimfarið myndi reynast vel í jafnvel lengri geimferðir en það.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×