Innlent

Íslendingar allra þjóða þunglyndastir

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Þeir sem ekki hafa lokið framhaldsskóla eru þunglyndastir.
Þeir sem ekki hafa lokið framhaldsskóla eru þunglyndastir. Vísir/Getty
Íslendingar eru þunglyndasta þjóð í Evrópu ef marka má rannsókn Efnahags- og framfarastofnunarinnaar, OECD.

Í nýrri skýrslu samtakanna, Menntun í hnotskurn, kemur fram að af þeim 25 Evrópulöndum sem könnunin tók til töldust um 14 prósent Íslendinga vera þunglyndir árið 2014. Meðaltal landanna 25 voru 8 prósent.

Rannsóknin byggir meðal annars á tölum úr evrópsku heilsufarsrannsókninni sem og innlendum könnunum og gefur hún til kynna að konur finna frekar til þunglyndiseinkenna en karlar.

Þá finnur fólk með minni menntun frekar fyrir einkennunum. Þannig eru um fimmtungur allra Íslendinga sem ekki eru með framhaldsskólamenntun taldir vera þunglyndir. Íslenskir karlar sem ekki hafa lokið framhaldsskólamenntun eru þó umtalsvert hamingjusamari en íslenskar konur með sama menntunarstig. Um 27 prósent kvenna án framhaldskólagráðu teljast þunglyndar en 18 prósent karla.

Eldri hamingjusamari

Þá eru Íslendingar á aldrinum 25 til 44 ára þunglyndari en þeir sem eldri eru. 12 prósent Íslendinga á aldrinum 45 til 64 eru þunglyndir samanborið við 16 prósent í lægri aldurshópnum. Hlutfallið lækkar eftir því sem menntunin eykst.

Andreas Schleicher, sem fer fyrir menntamálum hjá OECD, segir að allar líkur séu á að menntun hafi bein áhrif á andlega líðan. „Með meiri menntun hefurðu fleiri úrræði til að taka þátt í samfélaginu,“ er haft eftir honum og bætir Schleicher við að líkurnar á félagslegri einangrun séu sömuleiðis hærri eftir því sem fólk er minna menntað.

Niðurstöðurnar haldast í hendur við fyrri fregnir af þunglyndi Íslendinga en meðal annars má nefna að hvergi er neysla þunglyndislyfja meiri en á Íslandi.

Samkvæmt rannsókn OCED er hlutfall þunglyndra lægst í Tékklandi, Grikklandi, Póllandi, Ítalíu og Slóvakíu þar sem það er um 4 prósent.

Skýrsluna, sem kom út í gær, má nálgast hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×