Íslendingar allra þjóða þunglyndastir Stefán Ó. Jónsson skrifar 13. september 2017 06:57 Þeir sem ekki hafa lokið framhaldsskóla eru þunglyndastir. Vísir/Getty
Íslendingar eru þunglyndasta þjóð í Evrópu ef marka má rannsókn Efnahags- og framfarastofnunarinnaar, OECD. Í nýrri skýrslu samtakanna, Menntun í hnotskurn, kemur fram að af þeim 25 Evrópulöndum sem könnunin tók til töldust um 14 prósent Íslendinga vera þunglyndir árið 2014. Meðaltal landanna 25 voru 8 prósent. Rannsóknin byggir meðal annars á tölum úr evrópsku heilsufarsrannsókninni sem og innlendum könnunum og gefur hún til kynna að konur finna frekar til þunglyndiseinkenna en karlar. Þá finnur fólk með minni menntun frekar fyrir einkennunum. Þannig eru um fimmtungur allra Íslendinga sem ekki eru með framhaldsskólamenntun taldir vera þunglyndir. Íslenskir karlar sem ekki hafa lokið framhaldsskólamenntun eru þó umtalsvert hamingjusamari en íslenskar konur með sama menntunarstig. Um 27 prósent kvenna án framhaldskólagráðu teljast þunglyndar en 18 prósent karla.Eldri hamingjusamari Þá eru Íslendingar á aldrinum 25 til 44 ára þunglyndari en þeir sem eldri eru. 12 prósent Íslendinga á aldrinum 45 til 64 eru þunglyndir samanborið við 16 prósent í lægri aldurshópnum. Hlutfallið lækkar eftir því sem menntunin eykst. Andreas Schleicher, sem fer fyrir menntamálum hjá OECD, segir að allar líkur séu á að menntun hafi bein áhrif á andlega líðan. „Með meiri menntun hefurðu fleiri úrræði til að taka þátt í samfélaginu,“ er haft eftir honum og bætir Schleicher við að líkurnar á félagslegri einangrun séu sömuleiðis hærri eftir því sem fólk er minna menntað. Niðurstöðurnar haldast í hendur við fyrri fregnir af þunglyndi Íslendinga en meðal annars má nefna að hvergi er neysla þunglyndislyfja meiri en á Íslandi. Samkvæmt rannsókn OCED er hlutfall þunglyndra lægst í Tékklandi, Grikklandi, Póllandi, Ítalíu og Slóvakíu þar sem það er um 4 prósent. Skýrsluna, sem kom út í gær, má nálgast hér.
Mest lesið Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Innlent Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss Innlent „Ég sé engar staðreyndavillur í þessum þætti“ Innlent Séra Guðrún kjörin biskup Íslands Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Skítkastið var ógeðslegt“ Innlent Stillir viðtækið á alheimsdögunina Innlent Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Erlent Skotárás við heimili Drake Erlent Verðhækkanir á döner-kebab eitt helsta áhyggjuefni Þjóðverja Erlent Fleiri fréttir Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Undirbúa hópuppsögn hjá Grindavíkurbæ Töluverð óvissa um framvindu jarðhræringanna Gæsluvarðhald yfir manninum framlengt „Við þurfum ekki að verjast neinu“ „Ég sé engar staðreyndavillur í þessum þætti“ Aðstæður fyrir stýrivaxtalækkun á morgun Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Séra Guðrún kjörin biskup Íslands Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss SA og SSF skrifuðu undir langtímakjarasamning Agnes segir nýjan biskup taka við annarri kirkju en hún tók við Stýrivextir, Eurovision og biskupskjör „Skítkastið var ógeðslegt“ Fiskadauði í einni af mestu sjóbirtingsveiðiám landsins Valtýr ráðinn yfirlæknir Ný nálgun Samfylkingar í orkumálum konfekt í eyrum Jóns Vilja tryggja öryggi starfsfólks í vegavinnu „Massíf slysaslepping á vondu frumvarpi“ Stillir viðtækið á alheimsdögunina Þrír handteknir vegna vopnalagabrota og tveir vegna líkamsárásar Beinagrindur og ástarsorg á Bessastöðum Alþjóðanemar neyðist til að vinna svart á Íslandi „Tjónið af þessum slóðaskap hleypur á fleiri milljörðum“ Stóra stundin að renna upp: Bjartsýn en með báða fætur á jörðinni Sanngirnisbótafrumvarpið sé blekking Faðir mannsins sem lést á Litla-Hrauni krefst umbóta Kveikt í papparusli í Glæsibæ Flugfélögin grípa til ráðstafana vegna verkfallsaðgerða Skjálfti fannst vel á höfuðborgarsvæðinu Sjá meira