Formúla 1

Alonso: McLaren á möguleika á stigum í Singapúr

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Fernando Alonso á fer á Ítalíu, þar sem honum mistókst að klára keppnina.
Fernando Alonso á fer á Ítalíu, þar sem honum mistókst að klára keppnina. Vísir/Getty
Fernando Alonso telur að Singapúr keppnin verði raunverulegur möguleiki fyrir liðið til að safna stigum.

Hvorugum ökumanni McLaren liðsins tókst að klára í Ítalíu og Alonso tókst ekki að klára í Belgíu vegna vélabilunar.

Hönnun brautarinnar í Sinapúr gerir það að verkum að spænski ökumaðurinn er bjartsýnn fyrir helgina.

„Singapúr er frábær staður til að byrja eftir að Evrópu-tímabilinu er lokið. Þetta er ein af þeim brautum sem hentar pakkanum okkar best. Það gefur okkur raunverulegt tækifæri á jákvæðum úrslitum,“ sagði Alonso.

„Þetta er erfið braut, það er heitt og rakt, hún er bæði erfið fyrir ökumenn og bíla. Þetta er þó mjög skemmtilegt, en spennandi þegar maður hittir á góðan dag,“ sagði Alonso.

„Maður þarf bíl með gott grip í hægum beygjum og maður þarf mikið niðurtog, við höfum þar af leiðandi meiri möguleika hér, við þurfum bara að vera viss um að áreiðanleikinn sé til staðar,“ sagði Alonso að lokum.


Tengdar fréttir

Porsche hefur áhuga á Formúlu 1

Þýski bílaframleiðandinn Porsche hefur gefið það út að áhugi sé innanhúss fyrir þátttöku í Formúlu 1. Porsche vill skoða innkomu árið 2021 með nýrri vélareglugerð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×