Norska lögreglan rannsakar mál Therese á ný Atli Ísleifsson skrifar 14. september 2017 11:08 Therese var níu ára gömul þegar hún hvarf í hverfinu Fjell í Drammen í júlí árið 1988.
Deild norsku lögreglunnar sem rannsakar gömul, óupplýst mál hefur ákveðið að taka mál stúlkunnar Therese Johannessen, sem hvarf sporlaust fyrir 29 árum, til frekari rannsóknar. Lögmaður fjölskyldu Therese segist mjög ánægður með fréttirnar. Therese var níu ára gömul þegar hún hvarf í hverfinu Fjell í Drammen í byrjun júlímánaðar árið 1988. „Þetta þýðir að þeir hafa ekki gefist upp. Ég er ánægður með það. Það er frábært,“ segir Fridtjof Feydt, lögmaður fjölskyldunnar í samtali við ABC Nyheter. Rannsókn á hvarfi Therese var á sínum tíma dýrasta og umfangsmesta sakamálarannsókn sögunnar í Noregi. Enn er óljóst hver örlög stúlkunnar urðu. Christine Fossen, lögreglustjóri Suðausturumdæmis norsku lögreglunnar, hefur nú staðfest að ákveðið hafi verið að færa málið til deildar lögreglunnar sem rannsakar gömul óupplýst mál. Inger-Lise Johannessen, móðir Therese, greindi frá því í bók árið 2013 að hún hafi mesta trú á að dóttir sín hafi verið flutt til Pakistans árið 1988 og að hún væri þar enn á lífi.Viðurkenndi að hafa banað Therese Í lok tíunda áratugarins hélt sænski raðmorðinginn Thomas Quick því fram að það hafi verið hann sem rændi og drap Therese á sínum tíma. Hann var svo dæmdur fyrir morð á Therese í héraðsdómi í Hedemora í Svíþjóð þann 2. júní 1998. Í frétt NRK segir að engar sannanir hafi fundist fyrir því að Quick hafi drepið Therese Johannesen og dró hann síðar játningu sína til baka í tengslum við upptökur á sjónvarpsþætti. Saksóknarar í Svíþjóð létu málið á hendur Quick niður falla í mars 2011.
Mest lesið Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent „Fólk er bara að bíða“ Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Erlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Erlent Fleiri fréttir Þyrla forsetans sögð fundin Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Sjá meira