Erlent

Kveðjukoss Cassini

Kjartan Hreinn Njálsson skrifar
Árstíðaskipti hafa orðið á Satúrnusi eftir komu Cassini. Geislar sólarinnar falla nú á hinn risavaxna, sexhyrnda loftstraum á norðurpól plánetunnar. Í miðjunni iðar auga stormsins. Cassini fangaði auga stormsins í fyrsta skipti.
Árstíðaskipti hafa orðið á Satúrnusi eftir komu Cassini. Geislar sólarinnar falla nú á hinn risavaxna, sexhyrnda loftstraum á norðurpól plánetunnar. Í miðjunni iðar auga stormsins. Cassini fangaði auga stormsins í fyrsta skipti.

Þrettán ára dansi geimfarsins Cassini umhverfis Satúrnus er lokið. Geimfarið, sem skotið var á loft frá Canaveral-höfða 15. október 1997, hefur varpað nýju ljósi á þetta djásn sólkerfisins og hið stórbrotna kerfi hringa sem einkenna það.



Cassini er einhver merkasti vísindaleiðangur mannkynssögunnar. Yfir fjögur þúsund vísindagreinar, sem byggja á gögnum Cassini, hafa verið birtar. Á hringsóli sínu um Satúrnus hefur geimfarið jafnframt svipt hulunni af leyndardómum sem leynast á fylgitunglum plánetunnar.

Risinn og fylgitunglið dularfulla. Cassini náði þessari einstöku mynd af Satúrnusi og stærsta fylgitungli þess, Títan. Þvermál tunglsins er 5.150 kílómetrar (þvermál tunglsins okkar er rúmlega 1.700 kílómetrar).

Í gær tók Cassini sína síðustu dýfu milli hringa Satúrnusar. Leiðangri farsins lauk í lofthjúpi plánetunnar sem það hefur hringsólað um síðasta áratug. Á ógnarhraða fuðraði Cassini upp.



Mælitækin, linsurnar, tölvubúnaðurinn og plútóníumkjarninn sem knúið hefur geimfarið leystust upp í andrúmslofti plánetunnar. Cassini er nú endanlega orðinn hluti af Satúrnusi.

Ævintýrið hefst. Sjö ára ferðalag Cassini og lendingarfarsins Huygens hófst með geimskoti af Canaveral-höfða seint að kveldi þann 15. október 1997. Cassini-Huygens hóf sig á loft með TitanIVB/Centaur-eldflaug.

Á síðustu þrettán árum hefur Cassini ítrekað brotið blað í vísindasögunni. Lendingarfarið Huygens, sem ferðaðist með Cassini, lenti á tunglinu Títan 14. janúar 2005 og sendi myndir af yfirborði þess til Jarðar.



Síðan þá hefur geimfarið myndað og aflað upplýsinga um hin miklu metanhöf á Títan og lífvænleg skilyrði á tunglinu Enkeladusi en þar leynist vatn á 30 til 40 kílómetra dýpi undir ísilagðri auðn. Geimfarið bragðaði jafnframt á vatnsstrókum sem Enkeladus spýr úr suðurpól sínum.

Árstíðaskipti hafa orðið á Satúrnusi eftir komu Cassini. Geislar sólarinnar falla nú á hinn risavaxna, sexhyrnda loftstraum á norðurpól plánetunnar. Í miðjunni iðar auga stormsins. Cassini fangaði auga stormsins í fyrsta skipti.

Cassini hefur jafnframt horft ofan í ómælisdýpið á norðurpól Satúrnusar. Umhverfis hyldýpið geisar ævaforn fellibylur sem teygir anga sína yfir rúmlega tvö þúsund kílómetra.



Þetta er aðeins brotabrot af uppgötvunum Cassini. Þessar uppgötvanir eru ástæðan fyrir því að næstu ferðalangar mannkyns til Satúrnusar, sama hvort þeir verða vélrænir eða af holdi og blóði, munu fara þangað í leit að lífi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×