Körfubolti

Hörður Axel: Eigum möguleika á móti öllum ef við hittum eins og við eigum að gera

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hörður Axel setur niður skot.
Hörður Axel setur niður skot. vísir/ernir
Hörður Axel Vilhjálmsson stóð upp úr í íslenska körfuboltalandsliðinu í tapinu fyrir Pólverjum í dag. Hörður Axel skoraði 16 stig og hitti úr sex af 10 skotum sínum.

„Mér fannst baráttan í lagi allan leikinn en stundum detta hlutirnir ekki með þér. Þegar við skjótum eins og við skutum í dag er þetta hrikalega erfitt. Við verðum að fara að hitta úr þessum skotum,“ sagði Hörður Axel.

Fyrir mótið var talað um að Ísland ætti mesta möguleika á að vinna Pólland af liðunum í A-riðli.

„Við höldum alltaf áfram. Við höfum fimm tækifæri til að vinna leik. Tvö eru búin og þrjú eru eftir. Við leggjum okkur fram í hverjum einasta leik. Við eigum möguleika á móti öllum ef við hittum eins og við eigum að gera. Við bíðum eftir leiknum þegar þetta dettur ofan í hjá öllum,“ sagði Hörður Axel.

Hann segir að íslenska hafi fengið góð skot í leiknum, þau hafi bara ekki farið niður.

„Við erum að fá nákvæmlega sömu skot og áður og nákvæmlega skotin sem við viljum. Núna er undir okkur komið að setja þau niður,“ sagði Hörður Axel og bætti því við að íslenska liðið verði að njóta þess að vera á EM.

„Ég held við njótum þess alltaf en kannski er einhver pressa sem er undirliggjandi. Þetta fer batnandi,“ sagði Hörður Axel að lokum.


Tengdar fréttir

Umfjöllun: Ísland – Pólland 61-91 | Strákarnir ískaldir í skotunum og töpuðu stórt

Mjög flott byrjun og frábær stuðningur í stúkunni dugði ekki íslenska körfuboltalandsliðinu á móti Póllandi í öðrum leik sínum á EM í Helsinki. Pólverjar unnu sig inn í leikinn, spiluðu af skynsemi á móti baráttuglöðum íslensku leikmönnum og unnu að lokum 30 stiga sigur, 91-61, eftir mjög sannfærandi seinni hálfleik.

Tryggvi Snær: Þeir unnu okkur á hinum og þessum sviðum

"Ég veit ekki alveg hvað fór úrskeiðis. Mér fannst þeir vinna okkur á hinum og þessum sviðum," sagði stóri og stæðilegri miðherjinn, Tryggvi Snær Hlinason, eftir 30 stiga tap gegn Póllandi á EM í körfubolta í Finnlandi.

Haukur Helgi: Þurfum að kýla þá fyrst

Haukur Helgi Pálsson, leikmaður íslenska landsliðsins í körfubolta, segir að í sannleika sagt sé íslenska liðið ekkert verra en Pólland. Ísland tapaði þó leik liðanna í dag með 30 stiga mun, 91-16.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×