Handbolti

Jafntefli hjá Tandra og félögum

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Tandri Már í leik með íslenska landsliðinu.
Tandri Már í leik með íslenska landsliðinu. vísir/anton
Skjern og GOG skildu jöfn 29-29 í fyrstu umferð dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta í dag.

Leikurinn var í járnum allan tímann, en GOG var með eins marks forystu í hálfleik, 14-15.

Tandri Már Konráðsson komst ekki á blað hjá Skjern í dag, en Svíinn Markus Olson skoraði 7 mörk fyrir liðið.

Gøran Johannessen fór á kostum í liði GOG í dag og skoraði 11 mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×