Erlent

Irma mun „rústa“ Flórída eða nágrannaríkjum

Atli Ísleifsson skrifar
Irma gekk yfir hafsvæði norður af Haítí í nótt.
Irma gekk yfir hafsvæði norður af Haítí í nótt. Vísir/EPA
Brock Long, yfirmaður almannavarnastofnunarinnar bandarísku, FEMA, segir að Irma muni „rústa“ annað hvort Flórída eða nágrannaríkjunum þegar fellibylurinn gengur þar yfir.

Í frétt BBC er haft eftir Long að hlutar af Flórída verði án rafmagns í nokkra daga og að rúmlega 100 þúsund manns muni þurfa að hafast við í neyðarskýlum.

Irma er nú flokkaður sem fjórða stigs fellibylur og hefur í dag gengið yfir hafsvæði norður af Kúbu og stefnir á Flórída. Reiknað er með að fellibylurinn gangi á land í Bandaríkunum á sunnudag og mega íbúar eiga von á vindhviðum allt að 75 metrum á sekúndu.

Fréttir hafa borist af því að fólk hafi farið ránshendi á eyjunni Sankti Martin þar sem fellibylurinn olli gríðarlegri eyðileggingu. Að minnsta kosti átta manns létu lífið á eyjunni Sankti Martin í óveðrinu, en alls hafa fjórtán manns dáið á eyjum Karíbahafsins vegna Irmu.

Yfirvöld á Flórída hafa beint þeim fyrirmælum til um 500 þúsund íbúa að yfirgefa heimili sín vegna komu Irmu.

„Fellibylurinn Irna heldur áfram að vera ógn sem mun rústa Bandaríkjunum annað hvort í Flórída eða einhverjum Suðausturríkjanna,“ segir Long.


Tengdar fréttir

Irma ógnar allt að 26 milljónum manna

Fimmta stigs fellibylur veldur gífurlegu tjóni á eyjum Karíbahafs. Barbúda er sögð óbyggileg og Saint-Martin næstum öll í rúst. Bandaríkjamenn búa sig undir komu Irmu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×