Barn flutt til skoðunar á sjúkrahús eftir að hoppukastali fór á hliðina í Hveragerði Atli Ísleifsson skrifar 21. ágúst 2017 17:15 Hoppukastalinn var settur upp í tilefni af bæjarhátíðinni Blómstrandi dögum í Hveragerði. Hoppukastalinn á myndinni er ekki kastalinn sem um ræðir.
Barn var flutt á Heilbrigðisstofnun Suðurlands eftir að um fimm metra hár hoppukastali fór á hliðina í Hveragerði um helgina. Að sögn lögreglu á Suðurlandi voru þrjú börn í kastalanum þegar hann fór á hliðina. Sjúkrabíll var sendur á vettvang og var í kjölfarið ákveðið að flytja eitt þeirra til skoðunar á Selfoss. Barnið slasaðist ekki alvarlega eftir því sem Vísir kemst næst. Jóhann Tómasson, framkvæmdastjóri Sprell, sem á umræddan hoppukastala, segir að í þessu tilviki hafi blásari losnað eftir að einhver gekk á hann. Við það hafi loft farið úr kastalanum sem varð til þess að hann fór á hliðina þegar krakkar voru þar að leik. „Yfirleitt bindum við kastalana en veðrið var svo dásamlegt að við gerðum það ekki í þessu tilviki. Hann fór á hliðina og það hrufluðust þarna einhverjir tveir krakkar. Ef eitthvað svona gerist þá köllum við á sjúkrabíl – segjum að kastali hafi farið á hliðina, að krakkar hafi hruflast og biðjum þá um að kíkja á þetta. Svo er bara venja að lögregla taki skýrslu upp á tryggingamál.“ Jóhann segir að eftir að kastalinn hafi farið á hliðina hafi hann verið settur upp aftur og festur aðeins betur. „Yfirleitt eru kastalarnir festir en þarna var veðrið svo dásamlegt og okkur yfirsást þessi möguleiki.“ Jóhann segir að Vinnueftirlitið komi reglulega og fylgist með uppsetningu fyrirtækisins á tækjum. Hann segir þó að hoppukastalar séu undanþegnir slíku þar sem ekki sé um vélbúnað að ræða. Hoppukastalinn var settur upp í tilefni af bæjarhátíðinni Blómstrandi dögum.
Mest lesið Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Óljóst hvort þyrlan sé fundin Erlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent „Fólk er bara að bíða“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Erlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Fleiri fréttir Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Óttast um afdrif Íransforseta og ferðaveðrið í beinni Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður „Fólk er bara að bíða“ Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Sjá meira