Innlent

Sævar Helgi: Orð geta ekki lýst almyrkva

Kjartan Kjartansson skrifar
Gárungarnir hafa kallað Sævar Helga Sólmyrkva-Sævar eftir að hann stóð að því að gefa skólabörnum á Íslandi sólmyrkvagleraugu fyrir tveimur árum.
Gárungarnir hafa kallað Sævar Helga Sólmyrkva-Sævar eftir að hann stóð að því að gefa skólabörnum á Íslandi sólmyrkvagleraugu fyrir tveimur árum. Vísir/Sævar Helgi Bragason
Fólk gapti og trúði ekki eigin augum þegar sólin myrkvaðist yfir Bandaríkjunum í gær. Sævar Helgi Bragason, ritstjóri Stjörnufræðivefsins, segir engin orð til sem geta lýst því sem fólk upplifi við almyrkva.

Almyrkvinn á sólu í gær var sá fyrsti sem gekk yfir Bandaríkin þver í 99 ár. Sævar Helgi fylgdist með sjónarspilinu nærri bænum Glendo í Wyoming-ríki. Sá staður varð fyrir valinu þar sem hann var hvað næstur miðlínu myrkvans en þar stóð almyrkvinn lengst, tæpa tvær og hálfa mínútu.

„Það er ekki hægt að lýsa þessu. Það er sagt að það séu til orð yfir allt á íslensku en það eru bara ekki til orð til að lýsa því sem maður sér og upplifir þegar maður horfir á þetta. Þetta er engu líkt,“ segir Sævar Helgi sem var enn uppnuminn þegar Vísir náði tali af honum síðdegis í dag.

Svo mikil voru hughrifin að Sævar Helgi segist fá gæsahúð í hvert skipti sem hann segi fólki frá upplifuninni. Almyrkvi sé eitthvað sem allir verði að upplifa um ævina.

„Maður sér skugga tunglsins nálgast mann. Smám saman dimmir, maður finnur hitastigið lækka, birtuna breytast. Maður heyrir dýraríkið þagna, öll náttúran bregst við. Það er ótrúlega sterkt að upplifa það,“ segir Sævar Helgi.

Kóróna sólarinnar varð greinileg þegar tunglið myrkvaði skífu hennar algerlega. Kórónan er ysta lag lofthjúps sólarinnar og teygir sig milljónir kílómetra út í geiminn.Sævar Helgi Bragason
Skemmtilegra að deila með öðru fólki

Mikill áhugi var á sólmyrkvanum vestanhafs og var gríðarleg umferð í kringum slóð skuggans yfir Bandaríkin. Sævar Helgi segir að bílferðin til Glendo hafi átt að taka fjórar klukkustundir en hún hafi tekið sex klukkustundir vegna umferðarinnar. Heimferðin tók svo heilar tíu klukkustundir.

Upphaflega ætlaði Sævar Helgi og samferðarfólk hans að njóta almyrkvans í bænum Casper í Wyoming en umferðarþunginn varð til þess að þau breyttu þeim áformum. Var Sævar Helgi jafnvel farinn að óttast að þau kæmust ekki á staðinn í tæka tíð en allt fór þó vel að lokum.

„Það voru tugir þúsunda sem ætluðu að leggja leið sína þangað. Fólk lagði bara úti í vegarkanti og kom sér fyrir hér og þar til að fylgjast með,“ segir Sævar Helgi.

Stemming á meðal fólksins var þó skemmtileg að hans sögn. Hann og félagar hans drógu skiljanlega að sér nokkra athygli enda betur tækjum búnir en flestir aðrir.

„Þá leið manni bara eins og þegar maður er heima að sýna Íslendingum himininn. Það er það sem gefur þessu ennþá meira vægi enda skemmtilegra að deila þessu með öðrum,“ segir Sævar Helgi sem varð þjóðþekktur þegar hann og fleiri höfðu frumkvæði að því að dreifa sólmyrkvagleraugum til skólabarna fyrir deildarmyrkvann á Íslandi fyrir tveimur árum.

Samsett mynd sem sýnir hvernig tunglið gekk fyrir sólina yfir Wyoming í gærmorgun.Sævar Helgi Bragason
Langferðir til að upplifa myrkva

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Sævar Helgi leggur land undir fót til að verða vitni að almyrkva á sólu. Í fyrra fór hann og tveir félagar hans í langt ferðalag til Indónesíu í sama tilgangi.

Hann segir upplifunina nú betri en í fyrra þar sem að himininn yfir Bandaríkjunum var heiðari en í Indónesíu.

„Við sáum kórónu sólarinnar mun betur fyrir vikið. Svo blasti Venus við sem var rosalega áberandi þegar myrkvaði,“ segir Sævar Helgi sem ætlar sér einnig að fara til Síle til að sjá almyrkva þar eftir tvö ár.

Þessi skólabörn í Missouri voru á meðal þeirra milljóna Bandaríkjamanna sem fylgdust hugfangnar með almyrkvanum í gær.Vísir/AFP

Tengdar fréttir

Beðið í ofvæni eftir almyrkva

Þetta er í fyrsta skipti síðan 1918 sem tunglið gengur í veg fyrir sólu og veldur almyrkva af þessu tagi þvert yfir Bandaríkin.

Milljónir upplifðu almyrkva á sólu

Almyrkvinn sást fyrst frá Oregon-ríki klukkan korter yfir tíu að staðartíma, eða korter yfir fimm að íslenskum tíma. Lauk honum í Suður-Karólínu um klukkan korter í sjö.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×