Körfubolti

Rak umboðsmanninn sinn með sextán milljarða samning á borðinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Andrew Wiggins.
Andrew Wiggins. Vísir/Getty
Andrew Wiggins er ein af framtíðar stórstjörnum NBA-deildarinnar og þegar orðinn algjör lykilmaður í liði Minnesota Timberwolves. Það er því ekkert skrýtið að félagið sé tilbúið að bjóða honum góðan samning.

Minnesota Timberwolves bauð líka Andrew Wiggins 148 milljónir dollara fyrir fimm ár samning eða tæpa sextán milljarða íslenskra króna.

Umboðsmaðurinn Bill Duffy landaði þessum samningi fyrir Andrew Wiggins en strákurinn er þó ekki enn búinn að skrifa undir. Ástæðan er að hann rak umboðsmanninn sinn þegar hann átti aðeins eftir að skrifa undir samninginn.  ESPN segir frá.

Bill Duffy segir að aðrir umboðsmenn hafi verið að hræra í leikmanninum og orðrómur um að sumir væri að bjóða honum það að taka engin umboðslaun.  Duffy mun leita réttar síns og sækjast eftir eitthvað af þeim fjórum prósentum sem umboðsmenn NBA-leikmanna mega fá í umboðslaun.

„Við erum vonsviknir með að Andrew tók þessa ákvörðun ekki síst þar sem við erum búnir að vinna náið saman með Andrew og fjölskyldu hans í þrjú ár,“ sagði Bill Duffy í viðtali við ESPN.

Nokkur prósent af sextán milljarða samningi eru orðnar mjög stórar upphæðir.

Þetta óvænta útspil Andrew Wiggins mun flækja ferlið að ganga frá nýja samningnum og því ekkert víst að hann skrifi undir nærri því strax. Hann verður væntanlega fljótlega kominn með nýjan umboðsmann.

Andrew Wiggins er 22 ára gamall og kom til Minnesota Timberwolves í skiptum fyrir Kevin Love. Hann var valinn nýliði ársins á sínu fyrsta tímabili.

Bill Duffy hefur gott orð af sér sem umboðsmaður og hefur starfað sem slíkur í tvo áratugi. Hann hefur meðal annars starfað fyrir kappa eins og þá Yao Ming og Steve Nash.





NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×