Lífið

Hákarl réðst á sel fyrir framan mörg hundruð manns

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sláandi atvik.
Sláandi atvik.
Rýma þurfti Nauset ströndina í Cape Cod í Bandaríkjunum á dögunum eftir að hákarl réðst á sel í sjónum fyrir framan mörg hundruð manns.

Thayer Wade varð vitni af atvikinu og sá hann hvíthákarl ráðast á sel í sjónum aðeins nokkrum metrum frá ströndinni. Selurinn særðist illa og má sjá gríðarlegt magn af blóði í sjónum í myndbandi hér að neðan. 

Viðbrögð fólksins á ströndinni voru eðlilega mikil og þurftu nokkrir að flýja úr sjónum um leið og hákarlinn birtist. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×