FH grátlega nálægt því að komast í Evrópudeildina

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Úr fyrri leik liðanna.
Úr fyrri leik liðanna. vísir/anton
Tvö mörk frá Böðvari Böðvarssyni komu FH-ingum mjög nálægt því að komast í riðlakeppni Evrópudeildarinnar. Braga hafði að lokum 3-2 sigur á FH í síðari leik liðanna. Braga vinnur einvígið, 5-3.

Böðvar kom FH í tvígang yfir í leiknum. Í stöðunni 1-2 var leikurinn á leið í framlengingu. Braga jafnaði, 2-2, er tíu mínútur voru eftir og þá var framlengingin úr sögunni.

FH þurfti engu að síður aðeins eitt mark til þess að skjóta sér beint í riðlakeppnina. Liðið tefldi djarft undir lokin og fékk mark í andlitið í uppbótartíma.

Hrikalega svekkjandi eftir hetjulega frammistöðu.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira