Lífið

Bachelorparið Nick og Vanessa slitu trúlofuninni

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Nick og Vanessa fundu ástina í Bachelor þáttunum
Nick og Vanessa fundu ástina í Bachelor þáttunum Instagram
Nick Viall fór á skeljarnar og bað Vanessu Grimaldi í lok síðustu þáttaraðar af raunveruleikaþáttunum The Bachelor. Tilkynnt var um trúlofun þeirra í mars á þessu ári en þau hafa nú hætt við brúðkaupið. Í sameiginlegri tilkynningu sögðu þau meðal annars:

„Við gáfum þessu sambandi allt og við erum leið að við fengum ekki ævintýraendinn sem við vonuðumst eftir. Við munum halda áfram að vera til staðar fyrir hvort annað.“

Nick og Vanessa segja að þetta hafi alls ekki verið auðveld ákvörðun.  Bachelor og Bachelorette þættirnir njóta mikilla vinsælda hér á landi.

 

 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×