Lífið

Slökkvilið kom átta ára læðu til bjargar

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Kisimús með bjargvættunum sínum
Kisimús með bjargvættunum sínum Vísir
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út til að bjarga ketti úr tré í smáíbúðahverfinu á öðrum tímanum í dag. Að sögn eiganda kattarins, sem er átta ára gömul og lítil læða að nafni Kismús, hafði kötturinn klifrað upp í tréð einhvern tímann aðfararnótt fimmtudags og komst ekki niður aftur.

„Hún fer oft upp í trén í garðinum til að elta fugla, en hefur yfirleitt ekki reynt við aspirnar í garði nágrannans. Enda eru þær erfiðari, jafnvel fyrir vana klifurketti. Núna hafði henni tekist að klifra upp í gamla og feikiháa ösp sem stendur í garði nágrannans. Allar neðstu greinarnar hafa verið sagaðar af trénu, svo neðstu sex metrarnir eru strípaður og mosavaxinn trjástofn. Hvernig kettinum tókst að klifra upp, hef ég ekki hugmynd um. En þegar hann er kominn upp er engin leið fyrir hann að komast aftur niður með góðu móti,“ segir eigandinn Magnús Helgason.

Vísir

Vel heppnaður björgunarleiðangur

„Við ákváðum að gefa henni tíma til að koma sér niður sjálfri, en í staðinn klifraði hún bara hærra upp í tréð. Hún var komin í átta til tíu metra hæð í nótt og sat bara sem fastast.“

Magnús hringdi í Slökkviliðið í Reykjavík sem hafði í nógu öðru að snúast í morgun, en lofaði að senda körfubíl á staðinn þegar tóm gæfist. Bíllinn mætti um klukkan hálf tvö. 

Ari Hauksson, varðstjóri hjá Slökkviliðinu sagði að slökkviliðið fengi alltaf reglulega svona útköll, þó þau væru nú ekki daglegt brauð. „Þeir koma sér yfirleitt niður sjálfir, eða hlaupa af stað þegar við nálgumst,“ sagði hann í samtali við Vísi.

Kismús sat hins vegar sem fastast og leyfði slökkviliðsmönnunum að taka sig niður úr greininni. Hún hélt sér fast í bjargvætti sína og hljóp heim til sín um leið og hún komst niður á jörð.

Vísir
Ari sagðist hafa farið í nokkur svona útköll, en lengra væri síðan aðrir í áhöfn bílsins hefðu verið sendir í kattabjörgun. „Það er gott fyrir strákana að fá æfingu í þessu,“ sagði Ari en kollegar hans Jónas, Steinþór Darri og Svavar komu einnig að björguninni.

„Þetta var vel heppnaður björgunarleiðangur,“ sagði Ari að lokum um leið og hann stökk upp í bílinn og keyrði af stað í næsta verkefni.​






Fleiri fréttir

Sjá meira


×