Körfubolti

Nerlens Noel áfram hjá Dallas Mavericks

Nerlens Noel í leik með Dallas Mavericks á síðasta tímabili
Nerlens Noel í leik með Dallas Mavericks á síðasta tímabili visir/getty
ESPN greinir frá því að Nerlens Noel, sem var valinn sjötti í nýliðavali NBA deildarinnar árið 2013 af Philadelphia 76ers, lék með 76ers frá 2013 þangað til að honum var skipt yfir til Dallas Mavericks í febrúar í ár.

Noel spilaði 22 leiki með Dallas á síðasta tímabili og var með 8.5 stig og 6.8 fráköst að meðaltali í leik.

Það kemur mörgum á óvart að Noel endursemji við Dallas, en greint var frá því fyrr í sumar að hann hafi hafnað fjögurra ára samning við liðið sem var upp á 70 milljón dollara.

Talið er að Noel ætli sér að fara í annað lið eftir ár en hann ku vera að leita sér af stærri samningi en honum bauðst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×