Enski boltinn

Messan: Er Britos ekki að brjóta á Mignolet?

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Það var fast sótt að Hjörvari á Ölveri.
Það var fast sótt að Hjörvari á Ölveri.
Jöfnunarmark Watford gegn Liverpool um nýliðna helgi var nokkuð umdeilt og það var rifist um það í Messunni.

Hjörvar Hafliðason var á því að Britos hefði brotið á Mignolet, markverði Liverpool, í markinu.

Því var Gummi Ben svo sannarlega ekki sammála og Rikki Daða ekki heldur. Þeir þjörmuðu nokkuð að Hjörvari sem lét ekki segjast.

Sjá má þetta skemmtilega rifrildi hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×