Enski boltinn

Messan: Kristján (49) stal senunni á Ölveri

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Kristján (49), stofnandi og formaður Fletcher-sjúkdóms samtakanna á Íslandi, átti afar áhugaverða innkomu í Messuna í gær.

Messan var send beint út frá Ölveri í Glæsibæ með áhorfendum í sal.

Kristján, sem er alltaf orkulaus, var á meðal gesta og byrjaði á því koma upp á svið.

Hann fékk sér svo sæti úti í sal og spurði Ríkharð Daðason nokkurra skemmtilegra spurninga. Eftir þáttinn skutlaði Hjörvar Hafliðason Kristjáni svo heim eins og hann hafði lofað.

Innslagið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×