Innlent

Fjórir fluttir á slysadeild eftir bílveltu

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Bílveltan varð skammt frá Hvassahrauni.
Bílveltan varð skammt frá Hvassahrauni.
Sjúkraflutningamenn fluttu fjóra til aðhlynningar á Landspítalanum eftir bílveltu á Reykjanesbraut nú fyrir skömmu. Ríkisútvarpið greindi fyrst frá en í samtali við Vísi segir slökkviliðsmaður á vakt að ekki hafi verið útlit fyrir að meiðsl hafi verið alvarleg.

Bílnum hafði verið ekið frá Keflavík í átt til borgarinnar. Hann fór út af veginum á tvöföldum kafla Reykjanesbrautarinnar þar sem hún liggur um Hvassahraun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×