Innlent

Skrýtið að leita ekki tilboða frá Pennanum

Sigurður Mikael Jónsson skrifar
Grunnskóli Seltjarnarness leitaði óformlega tilboða hjá aðeins tveimur af fjórum helstu seljendum ritfanga við opinber innkaup á helstu námsgögnum fyrir grunnskólanemendur í bæjarfélaginu.
Grunnskóli Seltjarnarness leitaði óformlega tilboða hjá aðeins tveimur af fjórum helstu seljendum ritfanga við opinber innkaup á helstu námsgögnum fyrir grunnskólanemendur í bæjarfélaginu. vísir/anton brink
Penninn Eymundsson var ekki eitt þeirra þriggja fyrirtækja sem stjórnendur Grunnskóla Seltjarnarness leituðu tilboða frá vegna kaupa á helstu námsgögnum fyrir nemendur í 1. til 6. bekk. Aðstoðarskólastjóri segir að hluti námsgagnanna hafi verið keyptur í Costco.

Líkt og kom fram í máli skólastjórnenda í Fréttablaðinu í gær var að þeirra sögn leitað tilboða hjá helstu heildsölum og ritfangaverslunum. Að sögn Þorgerðar Önnu Arnardóttur, aðstoðarskólastjóra Grunnskóla Seltjarnarness, voru þetta A4, ABC skólavörur og Rekstrarvörur. Tilboði A4 var tekið en eigandi fyrirtækisins er eiginmaður formanns bæjarráðs og skólanefndar bæjarins, en það var einmitt skólanefndin sem samþykkti samhljóða tillögu skólans um að bjóða yngstu nemendum upp á helstu námsgögn, þó ekki öll, þeim að kostnaðarlausu. Sigrún Edda Jónsdóttir, formaður bæjarráðs og skólanefndar, sagðist í samtali við Fréttablaðið í gær þó enga aðkomu hafa haft að málinu, þó það sé óheppilegt í ljósi stöðu hennar og tengsla. Málið hafi verið á borði skólastjórnenda.

„Svo fórum við bara á stúfana sjálf og skoðuðum í Costco þannig að við versluðum meira að segja svolítinn hluta þar. Við keyptum því ekki einu sinni allt hjá A4, þó við höfum keypt megnið þaðan,“ segir Þorgerður Anna.

Ekki var leitað til Pennans Eymundsson, eins stærsta fyrirtækisins á þessu sviði og forstjóranum þykir það skrýtið.

„Það var ekki haft samband við okkur,“ segir Ingimar Jónsson, forstjóri Pennans Eymundsson, „sem okkur finnst mjög skrýtið.“

Kristbjörn Jónsson, markaðs- og sölustjóri Rekstrarvara, telur sömuleiðis að skólinn hafi farið fremur óhefðbundna leið í tilboðsleit sinni. Eðlilegra hefði verið að fara í örútboð á vegum Ríkiskaupa.

Mörg þeirra tuga sveitarfélaga sem að undanförnu hafa ákveðið að kaupa námsgögn fyrir grunnskólanemendur sína hafa farið þá leið. Penninn Eymundsson, Rekstrarvörur, Múlalundur og A4 eru þau fyrirtæki sem eru aðilar að rammasamningi um ritföng og skrifstofuvörur hjá Ríkiskaupum. Aðeins var því óformlega leitað tilboða hjá tveimur af fjórum helstu seljendum á þessu sviði við opinber innkaup. 


Tengdar fréttir

Námsgögn verða keypt af eiginmanni formanns skólanefndar

Seltjarnarnesbær mun kaupa námsgögn fyrir börn í 1. til 6. bekk af A4. Eiginmaður Sigrúnar Eddu Jónsdóttur, formanns skólanefndar og bæjarráðs, er eigandi A4. Hún segist enga aðkomu hafa haft að málinu en hún sé vissulega hagsmunaað




Fleiri fréttir

Sjá meira


×